19.09.26 - 18:55
Sölvi Haraldsson
Venni: Búið að sitja í manni hrottalega lengi
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér líður ógeðslega vel. Þetta er búið að sitja í manni hrottalega lengi, á annað eða þriðja ár, að sjá þetta fyrir sér. Svo að sjá þetta raungerast, ég þarf pínu bara að láta þetta synca inn og melta þetta.“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, sem var í dag að tryggja sætið sitt í Bestu deildina eftir sigur á Fylki á Laugardalsvelli.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
„Þetta hefur verið framhald af þessu verkefni, náum að halda í langflestu mennina. Í dag eru að byrja 8 uppaldir Þróttarar, menn hafa haldið tryggð við klúbbinn þótt félög hafa verið að narta í þá. Draumurinn var að láta þessa menn spila með Þrótti í efstu deild, ekki einhver önnur lið, það er yndislegt að við séum búnir að búa til þetta tækifæri fyrir þá að láta ljós sitt skína í efstu deild.“
Hvernig mat Venni þennan leik?
„Þetta var klassískur úrslitaleikur. Þeir bökkuðu Fylkismenn og leyfðu okkur að halda í hann en við náðum lítið að opna þá þar sem þeir lokuðu í öll göt. Þetta eru úrslitaleikir. Við höfðum alltaf trú samt og vissum að við myndum alltaf skora eitt mark.“
Aron Snær reyndist hetja Þróttara í dag en hann hefur verið orðaður við önnur félög.
„Þeim dreymir um að spila í efstu deild. Ég sé enga ástæðu fyrir Aron eða þessa stráka að spila með einhverju öðru liði í efstu deild, það væri eiginlega glórulaust.“