Fotbolti.net
19.09.26 - 19:12
Sölvi Haraldsson

Viðsnúningur hjá Þórhalli - „Skil það eftir hvernig seinasta tímabil endaði“

Auglýsing
Viðsnúningur hjá Þórhalli - „Skil það eftir hvernig seinasta tímabil endaði“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Þetta er óraunverulegt. Öll þessi vinna sem við höfum lagt í þetta. Við erum að uppskera núna, maður er bara orðlaus.“ sagði Þórhallur Ísak, markmaður Þróttar, eftir að Þróttur tryggði sætið sitt í Bestu deildina með 1-0 sigri á Fylki í dag á Laugardalsvelli.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
Þórhallur átti ekki góðan leik í undanúrslitunum gegn HK í fyrra en hefur spilað stórt hlutverk seinni hluta móts með Þrótti í ár eftir að hafa verið settur á bekkinn í byrjun móts.

„Mér líður bara vel, ég byrjaði tímabilið í öðru hlutverki og maður þurfti bara að taka því og halda áfram. Maður skilur það eftir hvernig seinasta tímabil endaði. Einn leikur í fyrra og já ég veit það ekki. Þetta var mjög skrítið að vera settur á bekkinn eftir undirbúningstímabilið. Aron Dagur er frábær markmaður en maður nýtti sér svo bara tækifærið þegar það kom, halda áfram að keyra á þetta.“

Hvernig leið Þórhalli í leiknum?

„Við vissum svosem hvering þeir myndu spila. Við vorum á því að þeir myndu vera með boltann og gera bara okkar. Þetta þróaðist eins og við bjuggumst við. Þetta eru þægilegustu leikirnir þegar við erum bara með boltann og maður þarf bara að standa þarna hálfpartinn, sérstaklega í fyrri hálfleik. En svo bara eins og síðustu leikir hafa verið að þá þurfum við að bakka og verjast sem við elskum.“

Venni, þjálfari Þróttar, sagði í aðdraganda leiksins að brandarastimpillinn sem væri á Þrótti er ekki til staðar lengur, Þórhallur tók undir það.

„Við erum búnir að sína það núna að sá stimpill er farinn, við skildum brandarastimpilinn eftir í fyrra. Project nothing.“ sagði Þórhallur sem sagðist svo ætla að vinna Bestu deildina á næsta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.