„Kominn tími á að fjölga í deildinni“ - Matti segir úrslitakeppnina gallaða

Matthías var mjög svekktur með tapið en segir Valskonur þurfa að ýta hratt á „delete“ og undirbúa næsta úrslitaleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías var mjög svekktur með tapið en segir Valskonur þurfa að ýta hratt á „delete“ og undirbúa næsta úrslitaleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tapaði gríðarlega mikilvægum leik gegn Þór/KA, 0-1, á Hlíðarenda í dag. Valskonur sköpuðu sér næg færi til að fá eitthvað út úr leiknum en Alessandra Dorothy Augur í marki Þórs/KA og sterk varnarlína gestanna sáu til þess að stigin þrjú færu norður.
„Ég er mjög svekktur með úrslitin. Þetta var krefjandi leikur þar sem tvö lið lögðu allt í sölurnar en niðurstaðan er ekki góð fyrir okkur,“ sagði Matthías, þjálfari Vals, eftir leik.
Matthías fannst Þór/KA vera sterkara liðið framan af og sagði Valskonur hafa fallið of mikið inn í leik gestanna.
„Fyrsta hálftímann fannst mér Þór/KA vera ofan á. Við vorum svolítið mikið í þeirra leik, með háa bolta sem þær eru góðar í, og þær voru að vinna seinni boltana. Maður hefði viljað sjá okkur vera ofan á strax frá byrjun.“
„Síðustu 15 mínúturnar í fyrri hálfleik náðum við að tengja betur saman og koma okkur í stöður. Seinni hálfleikurinn var áfram mikill baráttuleikur en við komumst í fullt af góðum stöðum. Þá snýst þetta um að velja rétt og klára stöðurnar.“
Matthías hrósaði um leið varnarleik Þórs/KA og benti á að ekki væri auðvelt að skapa gegn liðinu.
„Það er ekki auðvelt að skora á Þór/KA. Arna er ótrúlega sterk í fyrirgjöfum svo þær eru ekki alltaf rétta leiðin til að skora gegn þeim. Markvörðurinn er svo öflugur líka.“
Aðeins tveir leikir eru eftir og Valur mætir Víkingi næst. Matthías segir mikilvægt að dvelja ekki of lengi við vonbrigði dagsins.
„Þetta er svona leikur sem maður þarf að vera ótrúlega fljótur að ýta á delete, mæta á mánudaginn með kassann út, leggja sig allan fram og vera tilbúinn í næsta verkefni.“
Hann segir úrslitaleikina fram undan munu ráðast af nýtingu færanna, einbeitingu í varnarleik og því hvernig leikmenn ráða við spennustigið.
„Stöðurnar sem maður fær verður maður að taka og það skiptir miklu máli að halda einbeitingu í varnarleiknum allan tímann. Núna er stress og hátt spennustig inni í þessu líka. Ef maður ræður vel við það er maður í góðum málum.“
Matthías var einnig spurður út í umræðuna um fjölgun liða í Bestu deildinni og kvaðst vera hlynntur henni, óháð stöðu Vals í fallbaráttunni.
„Ég er sammála því að fjölga. Fólki finnst það kannski skrítið að ég segi það akkúrat núna, en ef ég væri í annarri stöðu í deildinni myndi ég líka segja það. Mér finnst kominn tími á að fjölga í deildinni.“
Hann segir jafnræði deildarinnar sýna að fleiri lið eigi erindi í efstu deild.
„Deildin er það jöfn og gríðarlega skemmtileg. Við höfum til dæmis spilað tvisvar við FH og gert tvö jafntefli. Við gáfum Breiðabliki líka hörkuleik í fyrri leiknum. Einhvern veginn geta allir unnið alla og ég held að deildin hafi sýnt það.“
Matthías hefur meiri efasemdir um núverandi úrslitakeppni. Hann var í efri hlutanum í fyrra og segir erfitt að halda uppi spennu þegar lítið er undir.
„Mér finnst úrslitakeppnin alltaf sérstök. Ég var hinum megin í fyrra, í fjórða eða fimmta sæti, og hafði lítið að keppa að. Maður fann það á liðinu að það var erfitt að mótivera sig í fimm leiki og það var ekki gefandi.“
Hann viðurkennir þó að spennan sé mikil í úrslitakeppninni í ár.
„Það er engin smá spenna í neðri hlutanum núna og eflaust heppnast úrslitakeppnin ágætlega í þetta sinn. Mér finnst hún samt gölluð fyrir ákveðna hluta deildarinnar.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
