mán 15.okt 2007 22:46 Hafliði Breiðfjörð,
Dagbók Valsstúlkna: Afbrotahrinan heldur áfram – ritskoðað
Beta tók hlutverk Loga Bergmanns *Ritskoðað* og Freysi hinnar íðilfögru Sólveigar stigadömu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragga greyið lenti í því að þrífa upp æluna en Belgarnir voru alveg brjálaðir og þurfti hún að taka taxa heim.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andrea nokkur Gústafsdóttir átti setningu dagsins en hún spurði Kötu lækni hvort pillan kæmi ekki örugglega í veg fyrir HIV smit.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður að koma fram að undirrituð, Hallbera, fór á kostum í umræddri keppni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
- TM styrkir umfjöllun Fótbolta.net um kvennaknattspyrnu
Íslandsmeistarar Vals eru nú staddar í Belgíu þar leika í milliriðlum í Evrópukeppni félagsliða kvenna þessa dagana. Liðið mætir í dag Everton frá Englandi í síðasta leik sínum í milliriðlum og sigur í dag gæti komið þeim áfram í 8 liða úrslit.

Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann sjötta.

Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Dagur 2: Dauði, djöfull og drulla!!! &%&$#%#$
Dagur 3: Krísufundur hjá yngri stúlkunum
Dagur 4: Hvar er Auðunn Blöndal?
Dagur 5: McDonalds tileinkaður næsti sigur...


Afbrotahrinan heldur áfram – ritskoðað
- Dagur 6

Dramað heldur áfram, það hefur verið framið annað afbrot! Í þetta sinn var framið afbrot á höfundarétti!!! HÁALVARLEGT!! Þeir sem lásu pistilinn frá gærdeginum tvisvar (við eigum dygga aðdáendur/stalkers) Þá gátu glöggir menn séð að honum hafi verið breytt!!! Við pistlahöfundar fengum smá skot á okkur en engu að síður er síminn að sjálfsögðu opinn. 24-7.

*Ritskoðað*

Morguninn byrjaði með fuglasöng og fögrum fyrirheitum um verslunarferð (og allir gluggar heilir á hótelinu)

Hópurinn var mættur eldsnemma í lobbíið og beið með eftirvæntingu eftir c.a 2 klst verslunarferð. Við biðum og biðum en aldrei kom rútan. (Við hefðum átt að taka leigubíl með Rottenberg sem var óþreygjufull að kaupa sér kjól fyrir þýska ksí.)

Loksins þegar rútan kom var ljóst að við hefðum örstuttan tíma til þess að dæla peningum/námslánum í belgíska hagkerfið. Það er óhætt að segja að 200 m sprettirnir á Ghetto ground (Leiknisvöllur) voru heldur betur að skila sér þar sem við þurftum að spretta á milli H&M búða sem voru 4 talsins.

Eftir klukkutíma og korter af blóði svita og tárum í H&M var að sjálfsögðu tekið McDonalds take away með í rútuna. Maturinn náði ekki að dvelja lengi í maganum þar sem að það var brunað beint á æfingu. Nokkrum leikmönnum var orðið alvarlega flökurt og Rakel fór alla leið og kastaði upp í varamannaskýlið á vellinum. Ragga greyið lenti í því að þrífa upp æluna en Belgarnir voru alveg brjálaðir og þurfti hún að taka taxa heim. (Það þýðir ekki að bjóða heimsmeisturunum sem voru á æfingu á eftir okkur upp á ælu eftir Íslendinga) Við viljum hér með vara fólk við því að borða McDonalds hálftíma fyrir fótboltaæfingu. (Nema þeir hafi reynsluna eins og sumir gera)

*Ritskoðað*

Eftir æfingu náði yngri liðið að saxa á forskot þeirra eldri í vítaspyrnukeppni. Staðan var allt í einu orðin 4-2.

Keppnin hélt áfram seinni part dags, yngra liðið var mætt í tiger göllum og spennan í hámarki. Liðin voru allt í einu orðin hnífjöfn! Það var m.a. keppt í að standa á höndum sem lengst, samanlögð innkastalengd og að ógleymdri spurningakeppninni frægu. Beta tók hlutverk Loga Bergmanns *Ritskoðað* og Freysi hinnar íðilfögru Sólveigar stigadömu. (Það verður að koma fram að undirrituð, Hallbera, fór á kostum í umræddri keppni)

*Ritskoðað Ritskoðað Ritskoðað Ritskoðað*

Eftir sjóðheitar keppnir eru eldri í mun betri stöðu en staðan er 7-5 þeim í vil.

Það er augljóst að nokkur börn eru með í ferðinni ásamt Maríu Lind (6 mánaða) en Andrea nokkur Gústafsdóttir átti setningu dagsins en hún spurði Kötu lækni hvort pillan kæmi ekki örugglega í veg fyrir HIV smit. Svipurinn á Maríu Lind sagði allt sem segja þurfti en hún leit á hana með fyrirlitningu og hristi hausinn og japplaði á snuddunni.
Ragga liðsstjóri varð mjög undrandi á því afhverju allir Belgar væru að flagga þýska fánanum á svölunum og spurði hvort þetta væru stuðningsmenn Frankfurt.

Nú er fólk að reyna að róa sig niður eftir mikið *ritskoðað* ;)
Leikurinn á morgun við Everton er ótrúlega mikilvægur og ætlum við okkur að sjálfsögðu ekkert annað en sigur.

Með sigri á morgun tryggjum við okkur áframhaldandi rétt í keppninni og komumst í 8 liða úrslit. Vonandi að McDonalds standi fyrir sínu (ættum að fá spons)

Með vinsemd og virðingu
Drama drottningarnar

Berry og Gugga :)
Nýjustu fréttirnar