Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 14. október 2007 22:09
Hafliði Breiðfjörð
Dagbók Valsstúlkna: McDonalds tileinkaður næsti sigur...
Köngulærnar enduðu síðan uppí rúmi hjá Betu af óskiljanlegum ástæðum, hún gjörsamlega trylltist og hefur ekki gengið heil síðan...
Köngulærnar enduðu síðan uppí rúmi hjá Betu af óskiljanlegum ástæðum, hún gjörsamlega trylltist og hefur ekki gengið heil síðan...
Mynd: Fótbolti.net - Ragnheiður Jónsdóttir
Þjálfararnir hafa miklar áhyggjur af átinu á Tedda en hann virðist éta allan daginn.
Þjálfararnir hafa miklar áhyggjur af átinu á Tedda en hann virðist éta allan daginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Vals eru nú komnar til Belgíu þar leika í milliriðlum í Evrópukeppni félagsliða kvenna þessa dagana liðið vann í gær Wezemaal frá Belgíu 4-0.

Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann fimmta.

Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Dagur 2: Dauði, djöfull og drulla!!! &%&$#%#$
Dagur 3: Krísufundur hjá yngri stúlkunum
Dagur 4: Hvar er Auðunn Blöndal?


McDonalds verður tileinkaður næsti sigur...
- Dagur 5

Mikil eftirvænting var í leikmönnum í morgun þar sem við áttum skilið verslunarferð eftir góðan sigur í gær. Guide’inn í ferðinni ætlaði að fara með okkur í mjög gott “mall” með öllum helstu búðum. Eftir 40.mínútna keyrslu var spennan orðin óbærileg og allir komnir upp með veskin og tilbúnir að strauja kortin.

Þvílík vonbrigði sem við urðum fyrir! “mallið” sem átti að hafa allar helstu búðirnar var með búðir eins og “Lola og Lisa” og “perfect fashion” og öðrum þekktum búðum – til að gera langa sögu stutta þá var þetta SKELFILEGT.

Heitustu varningarnir sem voru keyptir voru eyrnarbönd, plaköt og gerviköngulær. (Köngulærnar enduðu síðan uppí rúmi hjá Betu af óskiljanlegum ástæðum, hún gjörsamlega trylltist og hefur ekki gengið heil síðan)

Á leiðinni komumst við í belgíska blaðið þar sem helstu leikmenn Vals voru eftirtaldar: Elísabet Gunnarsdóttir (þjálfarinn okkar?) Soffía Ámundadóttir (Sossa hætti fyrir 4-5 árum?) Dagný Skúladóttir (Ein af bestu handknattleikskonum Íslands??) og Lára Viðarsdóttir (Hver er það? Hehe)

Eftir vonbrigði verslunarferðarinnar var ákveðið að fara á McDonalds sem sárabót. Þar sem leikmenn þorðu ekki að taka séns á túna-plokkfiski í enn einn kvöldmatinn...

Eitt er alltaf öruggt í lífinu en McDonalds stendur alltaf fyrir sínu og ef við vinnum leikinn við Everton þá verður Ronald McDonald tileinkaður sigurinn...

Þjálfararnir hafa miklar áhyggjur af átinu á Tedda en hann virðist éta allan daginn. Hann kom m.a seint á liðsfund áðan, þar sem hann var enn staddur á Kínverskum veitingarstað í Brussel. Þetta er fimmta máltíðin í dag og var reynt að skrá hann í Maraþon sem fór fram í miðbænum í morgun en hann stóðst ekki almennar heilbrigðiskröfur.

Ekkert hefur komið i ljós ennþá hver braust inn til okkar en við erum að vinna úr vísbendingunum.

Ástarhornið er á sínum stað en Málfríður biður fyrir eldheitum ástar og yndiskveðjum til elskhuga síns Fjölnis Þorgeirssonar (Fjalar markmaður með meiru í Fylki) Hún er búin að fylla káetu sína af myndum af honum og fer ekki úr herbergi án þess að smella einum rennblautum á þær.

Við pistlahöfundiar óskum eftir skilaboðum frá hverjum sem er að heiman síminn er opinn allan sólarhringinn.

Dóra María þín er sárt saknað og við vildum að þú værir hérna að tjilla með okkur og þýsku ofurmódelunum...

Með vinsemd og virðingu,
GuGgA og HaLlBeRa
Slapp
banner
banner