Íslandsmeistarar Vals eru nú komnar til Belgíu þar sem þær hófu í dag leik í milliriðlum í Evrópukeppni félagsliða kvenna en fyrsti leikurinn gegn Frankfurt í dag tapaðist 3-1 eftir að Valur hafði leitt þar til 10 mínútur voru eftir.
Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann fyrsta.
Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann fyrsta.
Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Dauði, djöfull og drulla!!! &%&$#%#$
- Dagur 2
Jæja þá er leikurinn við stórveldið Frankfurt búinn og við sitjum hérna hundfúlar, þar sem að við vorum að vinna leikinn allt fram að 80 mínútu þegar Birgit Prinz ákvað að klára leikinn og ýtti á “on” takkann.
Völlurinn var ágætur frekar mjór sem hentaði okkur vel, en laus í sér..minnti örlítið á okkar ástkæra “heima”völl, VALSbjarnarvöll. Klefarnir voru hins vegar mjög vafasamir en þeir minntu helst á fangabúðirnar í Auswitz. Þar voru 4 ískaldar sturtur, köngulær í hverju horni og klósettið sem var sameiginlegt (já ég pissaði við hliðina á Rottenberg) var vægast sagt ógeðslegt þar sem vaskurinn var garðslanga.
Okkar skipulag gekk vel upp framan af leik og þær þýsku orðnar drullu pirraðar á íslenska “stálinu”. En smá einbeitingarleysi og þreyta gerði útslagið. (auk þess að dómarinn var frekar hlutdrægur en hún var með stjörnur í augunum þegar hún horfði á þýsku stórstjörnurnar og sagði m.a “Bravo!” þegar þær skoruðu annað markið og tók af okkur fullkomlega löglegt mark í stöðunni 2-1 sem Thelma Björk skoraði. Helv. beyglan.......
Elísabet Gunnarsdóttir lenti í frekar vandræðalegu atviki þegar hún gekk inn á dómarann sem var (að við höldum) kvenkyns. Þar var dómarinn í miðjum klíðum að troða einhverju sem virtist vera pungbyndi ofan í nærbuxurnar.
Upp komu spurningar hvort dómarinn hafi verið tvítóla en hádegismaturinn fór einmitt í það að segja brandara á kostnað tvítóla fólks og við vorum ákveðnar í því að ef við þyrftum á kynskiptiaðgerð að halda yrðu ekki neinar ss vínarpylsur fyrir valinu, heldur almennilegar hrossa bjúgur!! (Fríða vildi hvala og ætlaði að geyma það á öxlinni)
Dagurinn var frekar hefðbundinn, við vöknuðum og tókum göngutúr og rákumst á Þóru Helgadóttur sem vinnur í nágrenninu við hótelið. Hún mætti að sjálfsögðu á leikinn og fáum við afnot af audinum hennar um helgina....Shotgun
Maturinn eftir leikinn var ekki uppá marga fiska...þó svo að það hafi verið fiskur í matinn. Þannig að nú sitjum við í káetunum okkar og bíðum eftir ljúffengum Dominos pizzum!! (tókum pásu, þær voru góðar)
Nú liggur Vanja í símanum og gerir dauðaleit af sólbaðsstofu hér í Brussel (hún er jú frekar hvít greyið) en hún ætlar að vera vel tönuð eins og við á ksí ;) Enda við valsstelpur þekktar fyrir að vera allt annað en albinóar! :)
Þær fréttir voru að berast að Wesemal var að vinna Everton 2-1 og því geta þær með sigri á okkur í næsta leik komist áfram þannig að nú er að duga eða drepast fyrir okkur í þessum DAUÐA riðli.
Dagurinn á morgun verður rólegur þar sem fólkinu verður tjaslað saman í dauðakáetunni hjá Jóa og Thelmu (the newlyweds) og æft eitthvað létt og skemtilegt.
Með vinsemd og virðingu
Hallbera Guðný Gísladóttir
&
Guðbjörg Gunnarsdóttir (Hagfræðingur og undirfata súper módel í hjáverkum)





