Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 12. október 2007 19:44
Hafliði Breiðfjörð
Dagbók Valsstúlkna: Krísufundur hjá yngri stúlkunum
Kvenaboltinn
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir þótti fara örlítið yfir strikið.
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir þótti fara örlítið yfir strikið.
Mynd: Fótbolti.net - Ragnheiður Jónsdóttir
Katrín Jónsdóttir fékk sprautuna með græna gumsinu.
Katrín Jónsdóttir fékk sprautuna með græna gumsinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Vals eru nú komnar til Belgíu þar sem þær hófu í gær leik í milliriðlum í Evrópukeppni félagsliða kvenna en fyrsti leikurinn gegn Frankfurt í gær tapaðist 3-1 eftir að Valur hafði leitt þar til 10 mínútur voru eftir og á morgun er næsti leikur þeirra gegn belgíska liðinu Wezemaal.

Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann þriðja.

Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Dagur 2: Dauði, djöfull og drulla!!! &%&$#%#$


Krísufundur hjá yngri stúlkunum
- Dagur 3

Nýr dagur
Leikmenn vöknuðu frekar seint eftir andvökunótt enda mikið svekkelsi í hópnum eftir þýska stuldinn, á stigunum þremur.

Eftir hádegismat sem var óvenju góður var farið á lauflétta æfingu þar sem Beta tryggði sér réttinn á því að klæða Óla markmannsþjálfara eins og hún vill á lokakvöldinu, en hún skoraði þrisvar sinnum á hann í vítaspyrnukeppni.

Líklegt er að á næstu æfingu munu belgískir karlmenn fjölmenna en í yngri vs eldri fór fram keppni sem var bannað að snerta gras og þurftu leikmenn því að grípa til örþrifaráða til þess að komast á áfangastað m.a með því að fækka fötum til þess að stíga á. Ása Dögg þótti fara örlítið yfir strikið en það skilaði henni engu þar sem að eldri rústuðu keppninni og eru nú komar í 4-0. (Sorglegt hjá yngri sem eru á krísufundi at this moment)

Ása hélt áfram að fara á kostum en fyrst kom í ljós að hún vissi ekkert hver Mia Hamm var og síðar kom í ljós að hún hafði ekki hugmynd um það hverjir væru markmenn Barcelona og Real Madrid og lét meira segja ljúga að sér að Marco Van Basten stæði á milli stanganna hjá Real. (Þess má geta fyrir þá sem ekki vita að Ása er markvörður.!!!)

Strax eftir æfingu var mikið panic ástand á hópnum þar sem að Katrín átti erfitt með gang og var farið í gulu síðurnar í símaskránni og hringt í næsta skottulækni.
Hann mætti á svæðið og við vissum ekki hvort hann væri lífs eða liðinn enda var hann í kringum 100 ára. Hann tók upp risa sprautu með grænu gumsi í og smellti henni í öklann á gömlu konunni okkar og er hún byrjuð að ganga eðlilega þótt hún hafi notað staf lengst framan af degi. Við krossum fingur og “secret’um” okkur í gegnum það að hún spili á morgun.

Eftir æfingu voru nokkrir galvaskir leikmenn sem ákváðu að taka leigubíl í supermarkað inn í Brussel. Það reyndist hægara sagt en gert að fá leigubíl þar sem enginn talar ensku hér og greinilega ekki margir leigubílar á svæðinu.

Við náðum þó að redda okkur inn í bæinn og versluðum “nauðsynjar” (kex og annað tilheyrandi.)

Heimleiðin átti eftir að reynast þrautinni þyngri þar sem okkur var sagt að mikill álagstími væri í umferðinni og lítið um leigubíla. Það endaði með því, eftir mikla bið að undirrituð (Gugga) fórnaði sér fyrir hópinn og æddi út á miðja umferðargötu og stoppaði saklausan leigubísstjóra sem var á leiðinni heim eftir vakt.

Eftir að Gugga beitti sannfæringarkrafti sínum, að við værum saklausar íslenskar stelpur sem væru að verða of seinar í mat þá ákvað hann að hleypa okkur í bílinn og skutlaði okkur heim í káeturnar okkar.

Núna var liðið að koma af hvatningar fundi fyrir leikinn gegn Wezemaal á morgun en það er lífsnauðsynlegt að ná sigri í þessum leik því annars erum við OUT.

Margrét Lára liggur alein inni í sinni káetu og hlustar á rólegt og rómantískt á Létt 96,7 í gegnum netið þar sem hún saknar síns ástkæra Einars og sendir honum knús og 1000 kossa.

Með vinsemd og gríðarlegri virðingu
Berry og Guggz!!
Slapp
banner
banner