Valsstúlkur rændar í Belgíu
Íslandsmeistarar Vals eru nú komnar til Belgíu þar leika í milliriðlum í Evrópukeppni félagsliða kvenna þessa dagana liðið vann í dag Wezemaal frá Belgíu 4-0.
Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann fjórða.
Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Dagur 2: Dauði, djöfull og drulla!!! &%&$#%#$
Dagur 3: Krísufundur hjá yngri stúlkunum
Liðið ætlar að leyfa Íslendingum að fylgjast með ævintýrum sínum með daglegum dagbókarpistlum hér á Fótbolta.net. Þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skrifa pistlana og hér að neðan má sjá þann fjórða.
Sjá einnig:
Dagur 1: Friðarsúlan á Goldfinger
Dagur 2: Dauði, djöfull og drulla!!! &%&$#%#$
Dagur 3: Krísufundur hjá yngri stúlkunum
Hvar er Auðunn Blöndal?
- Dagur 4
Í hádeginu var boðið uppá gegnheilan túnfisk fyrir leik og tóku því leikmenn ráðin í sínar hendur og hófu smástuld á súkkulaði ofan á brauð. Ása fórnaði sér fyrir liðið og er komin með svartan blett á samviskuna en hún fór inní einhverja kompu og stal stórri körfu fullri af súkkulaði. Það er betra að borða súkkulaði á brauð heldur en ekkert fyrir leik :)
Stemningin í hópnum fyrir leikinn var gríðarlega góð og var fararstjórnin búin að búa til magnað myndband til að gíra hópinn upp!
Leikurinn fór síðan 4-0 okkur í hag þar sem dugnaður, þrek og viljinn var meiri okkar megin (við vorum réttum megin við strikið). Græna gumsið frá skottulækninum virkaði svo sannarlega, því Katrín Jóns, okkar ástkæri fyrirliði, stóð sig frábærlega í leiknum. Hún skoraði fyrsta mark leiksins eftir skalla og vann bókstaflega alla bolta í loftinu en hún hafði leikmann á móti sér sem var 190cm á hæð!! Liðið stóð sig mjög vel í leiknum og varamenn komu virkilega frískir inn.
.
Við héldum að við værum dottnar í feitt með dómara leiksins, þar sem hún er gjörsamlega slefandi á eftir Dodda kyntrölli (Þórður Jensson í kvennaráði). Annað kom á daginn þar sem hún var í einu orði SKELFILEG og ekkert hægt að segja meir um það.
Á meðan leiknum stóð voru Birgit Prinz, Conny Pohlers og félagar að horfa á leikinn með Gylfa og Maríu Lind dóttur þeirra hjóna sem heillaði þær þýsku algjörlega uppúr skónum.
Eftir leikinn voru síðan Sif og Pála teknar í lyfjapróf og voru því skyldar eftir þar sem þeim gekk ekkert áleiðis. Þær voru þó mættar í tæka tíð til að verða vitni að drama ársins
ÞAÐ VAR BÚIÐ AÐ BRJÓTAST INNÍ EITT HERBERGIÐ Á HÓTELINU!!
Við erum ekkert að tala um smáþjófnað eins og súkkulaðið í hádeginu. Það var búið að spenna upp gluggann og lá hann í heilu lagi á gólfinu og ýmislegt gríðarlega verðmætt tekið þ.á.m fartölvur og íslenskar skólabækur. (spurning um að þjófarnir hyggji á íslenskunám??) Núna er löggan á svæðinu að taka fingraför og innsigla glæpavettvanginn. Hvar er Auðunn Blöndal með földu myndavélina? Við bíðum allavega eftir orðunum “tekinn”
Við þurfum því miður að vera áfram á þessu glæpahóteli, en við búum á neðstu hæð og eru leikmenn frekar skelkaðir eftir atburði dagsins. Ýmsar samsæriskenningar eru komnar á kreik að starfsmenn hótelsins standi fyrir þessu þar sem þeir vita að allur gangurinn var í burtu enda vorum við að spila leik. Annars ætlum við bara að láta lögguna um að upplýsa þetta háalvarlega mál.
Nú erum við AFTUR að bíða eftir pizzum frá Dominos, þar sem það er AFTUR túnfiskur í matinn og eru leikmenn komnir með æluna upp í háls af matnum hérna.
Lífið á glæpahótelinu er orðið ótrúlega heimilislegt og eru Óli markmannsþjálfari og Silke Rottenberg frammi að spila Lúdó og deila leyndarmálum markvörslunnar.
Nú þegar glæpirnir eru orðnir miklir og hættulegt að vera einn á gangi þegar það er orðið dimmt, þá höfum við gripið til þess ráðs að óla Lindu Rós niður í rúmið þar sem hún á það til að ráfa útur herberginu á nóttunni (steinsofandi) og valda miklum usla.
Með vinsemd og virðingu
Rannsóknarlögreglur Reykjavíkurstórveldisins,
GG og HGG


