Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 21. júní 2015 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: ESPN 
Clint Dempsey í þriggja leikja bann
Clint Dempsey
Clint Dempsey
Mynd: Getty Images
Clint Dempsey leikmaður Seattle Sounders í MLS, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann, fyrir að hafa labbað að dómaranum í leik Seattle og Portland og rifið dómarbók hans.

Dempsey missti algjörlega stjórn á skapi sínu þegar að dómari leiksins rak Michael Azira, liðsfélaga Dempsey af velli.

"Við líðum ekki hegðun af þessu tagi, sama hvaða leikmaður það er," segir í yfirlýsingu frá MLS.

"Sama hversu ástríðufullir leikmenn eru eða hvað gerist í hita leiksins, þá verða þeir að virða alla þætti leiksins, sérstaklega dómarana.

Í ljósi þess sem gerðist með Clint og þau fordæmi sem við höfum verið að setja okkur, þá fannst okkur lengd bannsins viðeigandi."


Hér fyrir neðan má sjá myndband af atvikinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner