Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 17. mars 2018 13:08
Gunnar Logi Gylfason
Rússland: Björn Bergmann með stoðsendingu
Allir þrír Íslendingarnir byrjuðu
Björn Bergmann lagði upp.
Björn Bergmann lagði upp.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Arsenal Tula 2-2 Rostov
0-1 Aleksey Ionov (8')
1-1 Artem Dzyuba (14')
1-2 Aleksey Ionov (31')
2-2 Artem Dzyuba (59')

Allir Íslendingarnir í liði Rostov byrjuðu inn á og léku allan leikinn í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Arsenal Tula.

Björn Bergmann Sigurðarson byrjaði í framlínunni hjá Rostov og lagði upp fyrra mark gestanna á meðan Ragnar Sigurðsson og Sverrir Ingi Ingason byrjuðu í vörninni.

Íslendingaliðið komst tvisvar yfir með mörkum frá Aleksey Ionov en Artem Dzyuba jafnaði leikinn tvisvar fyrir heimamenn.

Rostov eru eftir leikinn í 10.sæti deildarinnar, fjórum stigum frá umspilssæti um fall en hafa þó spilað einum fleiri leik en flest lið deildarinnar.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner