Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 19. maí 2015 10:53
Magnús Már Einarsson
Sterling djammaði með andstæðingunum
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool eru allt annað en ánægðir með Raheem Sterling þessa dagana en hann ætlar að óska eftir að fá að yfirgefa herbúðir félagsins.

Ekki á ánægja stuðningsmanna Liverpool eftir að aukast eftir myndir sem birtust á netinu í dag.

Þar sést Raheem Sterling á djamminu með Jason Puncheon og Yannick Bolasie leikmönnum Crystal Palace.

Myndirnar eru frá því á laugardaginn en einungis nokkrum klukkutímum áður höfðu Sterling og félagar tapað 3-1 gegn Crystal Palace.

Sterling hefur kvartað yfir því að Liverpool hafi ekki hjálpað til í neikvæðri umræðu um sig en ákvörðun hans að skella sér á djammið með andstæðingunum er ekki að hjálpa málstað hans.
Athugasemdir
banner
banner