Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   fös 08. mars 2024 14:15
Elvar Geir Magnússon
„Við erum báðir ungir svo ég veit ekki hvort þetta verði í síðasta sinn“
Jurgen Klopp og Pep Guardiola.
Jurgen Klopp og Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Það er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir sunnudeginum en þá mætast Liverpool og Manchester City í stórleik tímabilsins til þessa í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool er á toppi deildarinnar með 63 stig en Manchester City er aðeins einu stigi á eftir. Leikurinn hefst 15:45 á sunnudag.

Enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort þetta verði mögulega í síðasta sinn sem Jurgen Klopp og Pep Guardiola mætast í keppnisleik. Það veit enginn á þessari stundu en Klopp lætur af störfum hjá Liverpool á sunnudaginn.

„Ég held að við munum mætast oftar. Við gætum mæst í FA-bikarnum og enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég er ungur, hann er ungur, svo ég veit ekki," sagði Pep Guardiola á fréttamannafundi í dag.

Klopp segir að þó báðir séu keppnismenn þá ríki virðing á milli þeirra og samskipti þeirra í framtíðinni verði góð.

„Allir þessir bikarar sem hann hefur unnið en maður sér hann samt hegða sér á hliðarlínunni eins og hann hafi aldrei unnið bikar," segir Klopp.

Hann var spurður að því hvort þetta væri úrslitaleikur um Englandsmeistaratitilinn?

„Það er enn svo mikið eftir af tímabilinu. Ég held að enginn ætti að opna kampavín sama hvernig fer á sunnudaginn, en það eru þrjú risastór stig í boði. Þeir eru afskaplega sterkir mótherjar. Þetta er stórleikur og við erum spenntir að taka þátt í honum," segir Klopp.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 37 27 7 3 93 33 +60 88
2 Arsenal 37 27 5 5 89 28 +61 86
3 Liverpool 37 23 10 4 84 41 +43 79
4 Aston Villa 37 20 8 9 76 56 +20 68
5 Tottenham 37 19 6 12 71 61 +10 63
6 Chelsea 37 17 9 11 75 62 +13 60
7 Newcastle 37 17 6 14 81 60 +21 57
8 Man Utd 37 17 6 14 55 58 -3 57
9 West Ham 37 14 10 13 59 71 -12 52
10 Brighton 37 12 12 13 55 60 -5 48
11 Bournemouth 37 13 9 15 53 65 -12 48
12 Crystal Palace 37 12 10 15 52 58 -6 46
13 Wolves 37 13 7 17 50 63 -13 46
14 Fulham 37 12 8 17 51 59 -8 44
15 Everton 37 13 9 15 39 49 -10 40
16 Brentford 37 10 9 18 54 61 -7 39
17 Nott. Forest 37 8 9 20 47 66 -19 29
18 Luton 37 6 8 23 50 81 -31 26
19 Burnley 37 5 9 23 40 76 -36 24
20 Sheffield Utd 37 3 7 27 35 101 -66 16
Athugasemdir
banner
banner
banner