Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   fös 26. apríl 2024 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Bochum vippaði sér úr fallsæti
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Bochum 3 - 2 Hoffenheim
1-0 Kevin Stoger ('34 )
2-0 Felix Passlack ('45+2 )
3-0 Kevin Stoger ('64 )
3-1 Andrej Kramaric ('73 )
3-2 Andrej Kramaric ('84 )

Bochum er búið að vippa sér úr fallsæti í efstu deild þýska boltans eftir frábæran sigur gegn Hoffenheim í kvöld.

Austurríski miðjumaðurinn Kevin Stöger kom Bochum yfir í fyrri hálfleik og tvöfaldaði Felix Passlack forystuna í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Bochum var sterkara liðið í fyrri hálfleik og verðskuldaði að leiða viðureignina, en gestirnir frá Hoffenheim voru óheppnir að skora ekki mark.

Heimamenn héldu áfram að sækja í sig veðrið í síðari hálfleik og skoraði Stöger þriðja mark leiksins á 64. mínútu og hélt að hann væri þar með búinn að innsigla sigurinn, en Andrej Kramaric var ekki á sama máli.

Króatíski framherjinn skoraði tvennu á lokakaflanum en hún dugði þó ekki til, þar sem lokatölur urðu 3-2.

Bochum er þremur stigum frá fallsæti eftir þennan sigur á meðan Hoffenheim missti af kjörnu tækifæri í baráttunni um Evrópusæti. Þetta getur reynst afar dýr tapleikur fyrir Hoffenheim, sem er í harðri baráttu við Freiburg og Augsburg um sæti í Evrópu.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 33 27 6 0 87 23 +64 87
2 Bayern 33 23 3 7 92 41 +51 72
3 Stuttgart 33 22 4 7 74 39 +35 70
4 RB Leipzig 33 19 7 7 75 37 +38 64
5 Dortmund 33 17 9 7 64 43 +21 60
6 Eintracht Frankfurt 33 11 13 9 49 48 +1 46
7 Hoffenheim 33 12 7 14 62 64 -2 43
8 Freiburg 33 11 9 13 44 56 -12 42
9 Heidenheim 33 9 12 12 46 54 -8 39
10 Augsburg 33 10 9 14 49 58 -9 39
11 Werder 33 10 9 14 44 53 -9 39
12 Wolfsburg 33 10 7 16 40 53 -13 37
13 Gladbach 33 7 13 13 56 63 -7 34
14 Bochum 33 7 12 14 41 70 -29 33
15 Mainz 33 6 14 13 36 50 -14 32
16 Union Berlin 33 8 6 19 31 57 -26 30
17 Köln 33 5 12 16 27 56 -29 27
18 Darmstadt 33 3 8 22 30 82 -52 17
Athugasemdir
banner
banner
banner