Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   lau 27. apríl 2024 18:51
Brynjar Ingi Erluson
England: Everton búið að bjarga sér frá falli
Idrissa Gana Gueye sá til þess að bjarga Everton frá falli
Idrissa Gana Gueye sá til þess að bjarga Everton frá falli
Mynd: Getty Images
Everton 1 - 0 Brentford
1-0 Idrissa Gueye ('60 )

Everton hefur formlega bjargað sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni en þetta varð ljóst eftir 1-0 sigur liðsins á Brentford á Goodison Park í dag.

Eftir fremur rólegan fyrri hálfleik voru það Everton-menn sem mættur vel gíraðir í þann síðari.

Dwight McNeil átti þrumu skot í slá af 25 metra færi áður en Idrissa Gana Gueye skoraði sigurmarkið.

Gueye þrumaði boltanum af miklum krafti úr miðjum teignum og sá til þess að bjarga Everton-mönnum Senegalinn skoraði mikilvæg mörk á lokakaflanum.

James Garner komst nálægt því að gulltryggja sigurinn en aukaspyrna hans hafnaði í þverslá. Það breytti litlu því Everton vann og er nú búið að bjarga sér frá falli.

Everton gengið í gegnum ótrúlega erfitt tímabil. Stigafrádráttur, meiðsli og fjárhagsvandræði sem gerir þetta afrek magnað. Brentford er sömuleiðis öruggt með sæti sitt þegar þrír leikir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner