Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   fim 10. október 2019 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Viðar Örn: Menn þurfa að stíga upp
Icelandair
Viðar Örn Kjartansson
Viðar Örn Kjartansson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson er vongóður fyrir leikinn gegn Frakklandi sem fer fram á Laugardalsvelli á föstudag.

Íslenska landsliðið er með 12 stig, þremur minna en Tyrkland og Frakkland og því mikilvægur leikur framundan.

Frakkar eru núverandi heimsmeistarar og segir Viðar að það sé spennandi fyrir leikmenn að mæta Frökkum.

„Það leggst mjög vel í mig og sjálfsögðu frábært lið og heimsmeistararnir. Á þessum velli höfum við náð í ótrúleg úrslit og förum í þá til að vinna þá og það verður engin undantekning á því á föstudaginn," sagði Viðar Örn við Fótbolta.net

„Þeir eru með frábær einstaklingsgæði og við vitum að við þurfum að eiga okkar besta leik til að vinna. Leikmenn eru spenntir að spila á móti svona góðum leikmönnum og þeir vita hvað þeir eru góðir en við vitum líka hvað við getum á heimavelli."

Kylian Mbappe og Hugo Lloris eru á meiðslalista Frakklands og verða ekki með liðinu í næstu tveimur leikjum en Viðar segir að það skipti litlu máli.

„Þetta eru frábærir leikmenn og það hjálpar okkur en það kemur maður í manns stað þarna og alls engir aukvísar. VIð förum í alla leiki til að vinna og við ætlum að vinna Frakka."

Það vantar ekki breiddina í framherjastöðuna í hópinn en Kolbeinn Sigþórsson, Alfreð Finnbogason og Jón Daði Böðvarsson berjast við Viðar um stöðuna.

„Við erum með fullt af frábærum framherjum. Möguleikarnir mínir eru kannski aðeins minni en ég er alltaf klár á að spila og reyni að vera það hvenær sem er," sagði hann ennfremur.

Vont að missa Aron

Aron Einar Gunnarsson er fjarri góðu gamni með íslenska liðinu á föstudaginn en hann meiddist á ökkla. Viðar segir þetta frábært tækifæri fyrir aðra leikmenn til að stíga upp.

„Hann er frábær leikmaður og mikill leiðtogi og hefur gert frábæra hluti fyrir okkur. Það er vont fyrir okkur að missa hann en við erum með góða leikmenn líka og það er bara maður í manns stað og menn þurfa að stíga upp."

Mikið ströggl að skapa færi

Viðar er á láni hjá Rubin Kazan frá Rostov en honum hefur gengið illa að koma knettinum í netið þar eftir að hafa verið frábær með Hammarby í sumar. Hann hefur gert 1 mark í 10 deildarleikjum en Rubin er með frekar ungt lið og er í uppbyggingu.

„Ég er búinn að spila leikina en fyrir síðasta verkefni var búið að ganga vel. Svo kem ég aftur til baka og við töpum þremur leikjum í röð held ég og skorum ekki mark en svo náum við í fjögur stig úr tveimur leikjum. Þetta er að verða betra og áttum í miklu ströggli með að skapa færi og skora og það bitnar alveg á mér. Síðustu leikir hafa ekkert gengið rosalega vel, sjálfstraustið lítið en þetta er allt að koma."
Slapp
banner
banner
banner