Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
   fim 14. nóvember 2019 10:00
Arnar Helgi Magnússon
Dagný Brynjars ætlar að vinna titla: Ekki mætt bara til að vera með
Kvenaboltinn
Dagný við undirskriftina í gær.
Dagný við undirskriftina í gær.
Mynd: Selfoss - Guðmundur Karl
Dagný í leik með íslenska landsliðinu
Dagný í leik með íslenska landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég tók mér smá tíma í að hugsa um hvað ég ætlaði að gera en svo tók ég ákvörðun aðallega út frá fjölskyldunni að það væri best fyrir okkur að koma heim," segir Dagný Brynjarsdóttir sem skrifaði undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss í gærkvöldi.

„Ég veit að hverju ég geng hérna á Selfossi, mér líst vel á þjálfarana og hópinn. Það kom aldrei neitt annað til greina og ég er bara mjög spennt fyrir næsta sumri með þeim."

Dagný segir að ákvörðunin hafi ekki verið neitt sérstaklega erfið eftir að hún fékk símtal frá Alfreði, þjálfara Selfoss.

„Nei og sérstaklega ekki eftir fyrsta fund, þá var ég eiginlega búin að ákveða mig og hafði þannig séð engan áhuga á því að heyra frá öðrum liðum."

Dagný gengur kemur frá bandaríska liðinu Portland Thorns í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hún segir að viðskilnaðurinn við liðið hafi verið nokkuð erfiður.

„Okkur leið vel úti sem fjölskylda. Fótboltinn geggjaður og umhverfið í kringum liðið líka. Því miður er kvennaboltinn ekki kominn það langt að sé hægt að hafa barn og maka með sér úti þannig sú ákvörðun var erfið en hentaði fjölskyldunni vel."

Þá segir Dagný að hún hafi ekki rætt við önnur lið en Selfoss hérna á Íslandi. Dagný býr á Selfossi og er ekki ókunnug félaginu því hún hefur spilað 37 leiki fyrir Selfoss í öllum keppnum. Hún spilaði síðast með Selfossi í úrvalsdeildinni 2015.

Eins og frægt er orðið hampaði Selfoss bikarmeistaratitlinum í sumar og segir Dagný að það séu spennandi tímar framundan á Selfossi.

„Þetta er mjög spennandi. Þetta er góð blanda af ungum og efnilegum leikmönnum, það eru einhverjar hérna sem ég spilaði með síðast. Ég hitti Hólmfríði aftur en við höfum aldrei spilað saman í félagsliði. Það eru ungar og efnilegar stelpur að koma upp sem verður gaman að spila með."

„Ég ætla að koma hingað til þess að halda áfram að bæta minn leik. Ég geri það bæði með því að æfa með stelpunum og svo æfi ég með akademíunni og Gunni Borgþórs tekur mig síðan á aukaæfingar. Ég ætla ekkert að koma hingað til að vera með, ég ætla að vinna titla. Það er orðið langt síðan að ég varð Íslands- eða bikarmeistari svo að ég stefni á það," sagði Dagný að lokum.

Viðtalið við Dagnýju Brynjarsdóttur, nýjasta leikmann Selfoss, má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan.
Slapp
banner
banner
banner