Fotbolti.net
Gabríel Sighvatsson
Pepsi-deild karla 2015
Hásteinsvöllur
Kalt og vindasamt
ÍBV
ÍBV
3 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
Jonathan Ricardo Glenn (misnotað víti) 17'Hafsteinn Briem 18'1 - 0Aron Bjarnason 25'2 - 0Jonathan Ricardo Glenn 32'3 - 03 - 169' Igor Taskovic3 - 279' Igor Taskovic (víti)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Dómarinn í aðalhlutverki í fyrsta sigri Eyjamanna

Hvað réði úrslitum?

Fyrrir hálfleikurinn. ÍBV komst í 3-0 og héldu þriggja marka forystu alveg fram að 70 mínútum. Víkingar náðu að minnka muninn á þessum 20 mínútum en þrátt fyrir að vera ansi nálægt vantaði smá upp á tankinn hjá Víkingsmönnum til að jafna leikinn.

Bestu leikmenn

1. Ian Jeffs

Var afburðabestur í liði Eyjamanna í dag. Skoraði ekki né lagði upp en var burðarásin í liði ÍBV í dag og kom með Eyjagleðina inn í liðið.

2. Igor Taskovic

Andri Ólafs og Hafsteinn Briem voru góðir en Igor fær titilinn sem næstbestur eftir að hafa næstum tryggt Víkingi stig með tveimur mörkum undir lokin.

Atvikið

Vítaspyrnan sem ÍBV fékk í fyrri hálfleik. Þó að Glenn hafi klúðrað henni þá náður þeir forystunni úr hornspyrnunni sem fylgdi í kjölfarið. Það gaf Eyjamönnum meira sjálfstraust og þeir settu tvö í viðbót áður en hálfleikurinn var úti. Það reyndist vera of mikið fyrir Víking í lokin.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV fær sín fyrstu þrjú stig sem er rosalega góð hvatnig fyrir botnbaráttuleik í næstu umferð gegn Keflavík en þessi tvö lið eru í tveimur neðstu sætunum. Víkingur tapar sínum öðrum leik á tímabilinu og gæti það skipt sköpum að hafa ekki náð að jafna leikinn og fá að minnsta kosti stig í dag.

Vondur dagur

Dómarinn Ívar Orri Kristjánsson var langt frá því að vera hæfur til að dæma þennan leik í dag. Allt of margar rangar ákvarðanir sem breyttu leiknum. Rolf Toft sá síðan ekki til sólar í dag.

Dómarinn - 2

Ívar Orri Kristjánsson átti alls ekki góðan dag. Bæði vítin sem hann dæmdi í leiknum áttu aldrei að vera. Illa gekk að halda leiknum fljótandi og blés hann of oft í flautuna í staðinn fyrir að leyfa leiknum að halda áfram. Svo voru mörg gulu spjaldanna sem hann lyfti alveg út í hött.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.