Fotbolti.net
Daníel Geir Moritz
Daníel Geir Moritz
Pepsi-deild karla 2015
Alvogenvöllurinn
KR
KR
4 - 0
Keflavík
Keflavík
Þorsteinn Már Ragnarsson 20'1 - 0Óskar Örn Hauksson (víti) 56'2 - 0Óskar Örn Hauksson 76'3 - 0Skúli Jón Friðgeirsson 79'4 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Flugeldasýning KR-inga

Hvað réði úrslitum?

Annað liðið var einfaldlega betra en hitt. Engir farþegar í liði KR en nokkrir hjá Keflavík.

Bestu leikmenn

1. Jacob Schoop

Þrumaði tvisvar í tréverkið en var þess utan heilinn á bak við allar sóknir KR. Fékk góða aðstoð frá Pálma og Jónasi á miðjunni og fór á kostum!

2. Óskar Örn Hauksson

Skoraði tvö mörk og var líflegur í liði KR.

Atvikið

Fannar Orri og Jónas Guðni Sævarssynir mættust á vellinum í kvöld. Báðir áttu fínan leik.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið ætla sér að vera með í baráttu í sumar. KR á toppnum, Keflavík á botninum.

Vondur dagur

Einar Orri átti afleitan dag. Var mjög tæpur á boltanum, gaf víti og var Unnari, ungum leikmanni Keflavíkur í vörninni, enginn lærimeistari.

Dómarinn - 8

Leikurinn var frekar grófur á köflum en flaut vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.