Fotbolti.net
Gunnar Birgisson
Gunnar Birgisson
Pepsi-deild karla 2015
Fylkisvöllur
Fullkomnar
Fylkir
Fylkir
0 - 3
Valur
Valur
0 - 142' Patrick Pedersen0 - 252' Kristinn Ingi Halldórsson0 - 359' Sigurður Egill Lárusson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Fylkis skipið strandaði í heimahöfn

Hvað réði úrslitum?

Barátta Valsmanna var það sem réði úrslitum í dag, voru grimmari í alla 50/50 bolta og virtust langa meira í stigin þrjú.

Bestu leikmenn

1. Patrick Pedersen

Frábær í sókninni í dag. Stanslaus ógn frá honum og miðverðir Fylkis voru ekki alveg klárir hvernig þeir ættu að taka á honum. Loksins að maður fer að sjá rétta andlit danans knáa.

2. Kristinn Freyr Sigurðsson

Tvær stoðsendingar og arkitektinn í flestum sóknum Vals í dag.

Atvikið

Skemmtilegt þegar Vilhjálmur Alvar dómari stöðvaði leikinn og bað Bjarna Ólaf um að taka vinsamlegast af sér giftingarhringinn sinni. Bjarni varð við þeirri beiðni og eftir smá rembinn fór hringurinn af.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn hoppa aðeins ofar á töflunni og jafna Fylki að stigum. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Val ef þeir ætla sér að taka þátt í einhverri baráttu um Evrópusæti þrátt fyrir að Óli Jóh skyldi ekki hafa haft trú á því fyrir mót að sú yrði raunin.

Vondur dagur

Kannski kvikyndislegt að segja þetta en tveir af bestu mönnum Fylkis það sem af er tímabils Albert Brynjar og Oddur sáust hreinlega ekki í leiknum. Albert var í algjörri gjörgæslu.

Dómarinn - 7

Sýndist hann sleppa augljósri hendi á Fylki innan vítateigs í stöðunni 0-0 en annars heilt yfir ágætis leikur hjá honum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.