Fotbolti.net
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi-deild karla 2015
Fjölnisvöllur
Sól, smá vindur og heiðskýrt.'
Fjölnir
Fjölnir
2 - 0
ÍA
ÍA
Bergsveinn Ólafsson 16'1 - 0Þórir Guðjónsson 63'2 - 0
Dómari: Garðar Örn Hinriksson

SKÝRSLAN: Furðumark í Voginum

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn voru einfaldlega beittari og ákveðnari í sínum aðgerðum. Einhvernveginn er kannski hægt að segja klisjuna að þeim langaði meira í sigurinn. Skagamenn mættu ekki til leiks fyrr en eftir c.a. 40 mínútur en það var bara of lítið og of seint

Bestu leikmenn

1. Þórir Guðjónsson

Þórir var sívinnandi í leiknum og skoraði gott mark. Góður leikur hjá góðum leikmanni.

2. Aron Sigurðarson

Aron er einhvernveginn alltaf hættulegur þegar hann fær boltann og með deadly skotfót. Átti fínan leik í dag.

Atvikið

Seinna mark Fjölnis. Fyrrum skagamaðurinn Ragnar Leósson átti furðu sendingu langt fram völlinn. Boltinn skoppar yfir varnarmann og Þórir Guðjónsson kom boltanum í netið í fyrstu snertingu.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnismenn eru á góðu róli og eru í efri hlutanum og hljóta að vera nokkuð sáttir með gengið það sem af er. Þetta er klárlega eitthvað til að byggja á. Skagamenn eru aftur á móti í mikilli leit að sigri og einnig í mikilli leit að markaskorara.

Vondur dagur

Frasinn ,,skagamenn skagamenn skoruðu mörkin\" á svo sannarlega ekki við á Akranesi í dag. Þeir þurfa nauðsynlega á sóknarmanni að halda sem skorar mörk. Arsenji hefur ekki sýnt það sem búist var við af honum. Garðar Gunnlaugsson er meiddur og ekki vitað hver á að leysa hann af. Einnig átti Ásgeir Marteins afleitan leik. Erfitt að útskýra það afhverju hann eigi sæti skilið í byrjunarliðinu miðað við leikinn í kvöld og það sem hann hefur sýnt það sem af er móti.

Dómarinn - 6,5

Garðar Örn var bara ágætur í dag. Engin afdrífarík mistök gerð og hafði ágætis stjórn á leiknum
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.