Fotbolti.net
Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Pepsi-deild karla 2015
Kaplakrikavöllur
FH
FH
4 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
Steven Lennon 6'1 - 01 - 119' Ólafur Hrannar Kristjánsson Steven Lennon 29'2 - 1Atli Guðnason 66'3 - 13 - 271' Hilmar Árni Halldórsson Steven Lennon (víti) 94'4 - 2
Dómari: Valdimar Pálsson

SKÝRSLAN: Þrenna Steven Lennon afgreiddi Leikni

Hvað réði úrslitum?

Steven Lennon framherji FH réði úrslitum fyrir FH-inga í dag. Mörkin hans þrjú voru það sem skar á milli liðanna í dag.

Bestu leikmenn

1. Steven Lennon, FH

Frábær dagur hjá Steven Lennon í dag. Það skapaðist alltaf hætta þegar hann fékk boltann. Hann hélt áfram sæti sínu í liðinu þrátt fyrir aðeins eitt mark í fyrstu fimm leikjunum og endurgalt að með þremur frábærum mörkum í dag, fiskaði víti líka og varði á marklínu.

2. Hilmar Árni Halldórsson, Leiknir

Hilmar Árni var mjög góður hjá Leikni í dag. Sendingar hans eru mjög góðar og hann er alltaf ógnandi. Hann lagði upp eitt og skoraði annað fyrir Leikni í dag.

Atvikið

Atvikið sem allir tala um eftir þennan leik er annað mark FH. Böðvar Böðvarsson tók hornspyrnu, Pétur Viðarsson kom boltanum áfram á Steven Lennon sem lá í grasinu, en náði boltanum og tók bakfallsspyrnu og setti boltann í markinu þrátt fyrir að liggja. Ótrúlegt mark.

Hvað þýða úrslitin?

FH er áfram á þeim stað sem þeim líður best á toppi deildarinnar en ljóst að baráttan þarna uppi er mun meiri en undanfarin ár miðað við fyrstu sex umferðirnar og ekki leyfilegt að misstíga sig. Leiknisliðið lítur vel út, hættir aldrei og geta vel við unað þrátt fyrir tap í dag.

Vondur dagur

Leiknir stillti upp í leikkerfinu 5-3-2 í dag með Charlie Fomen sem vinstri bakvörð og Gest Inga Harðarson sem vinstri miðvörð, einn af þremur. Samvinna þeirra var helsta vandamál liðsins í dag, Fomen skilaði sér oft illa til baka svo Gestur leit illa út. Afleiðingin var svo sú að Gestur var tekinn útaf í hálfleik og Leiknir breytti um leikkerfi.

Dómarinn - 7

Lítið út á Valdimar Pálsson og félaga hans þá Leikni Ágústsson og Gunnar Sverri að setja í dag. Leikurinn var fjörugur og nóg að gerast og þeir höndluðu það nokkuð vel í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.