SKÝRSLAN: Jeffsý vill Peffsý
Hvað réði úrslitum?
Seigla ÍBV manna réði eiginlega úrslitum. Valsmenn fengu urmul færa sem þeir nýttu illa en virust með unninn leik þegar ÍBV komu til baka og jöfnuðu.
Bestu leikmenn
1. Ian Jeffs
Valið stóð á milli hans og Pedersen en Jeffs fór fyrir sínum mönnum í endurkomunni og skoraði jöfnunarmarkið. Sá hefur reynst Eyjamönnum vel að undanförnu.
2. Patrick Pedersen
Skapaði fjölmörg færi og skoraði að auki gott mark. Hvar reyndar svolítið í síðari hálfleik og datt þá niður í annað sætið.
Atvikið
Jöfnunarmark ÍBV er klárlega atvik leiksins. Í stöðunni 3-1 bjóst enginn við að ÍBV kæmi til baka, svona miðað við hvernig leikurinn spilaðist, en allt kom fyrir ekki þegar Ian Jeffs skoraði með góðu skoti úr teignum.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV eru nú fjórum stigum á undan leikni þegar tvær umferðir eru eftir og fóru langt með að tryggja veru sína í Pepsi deildinni að ári. Valsmenn lenda í 3-5 sæti sem skiptir þá litlu máli því liðið er búið að vinna sér inn Evrópusæti.
Vondur dagur
Varnarmenn ÍBV voru afleitir í dag og var það ekki þeim að þakka að liðið fékk aðeins á sig þrjú mörk. Pepa sýndi á sér furðulega hlið og þá var Stefán Ragnar í miklu basli megnið af leiknum.
Dómarinn - 9
Hélt þesu í góðu jafnvægi og hikaði ekki við að spjalda þegar það átti við. Frábær dómgæsla hér í dag.



