SKÝRSLAN: Skagmenn vilja meira Pepsí
Hvað réði úrslitum?
Vilji og gæði leikmanna ÍA í dag var það sem réði úrslitum. Þeir komu ákveðnari inn í leikinn og þrátt fyrir að ekki mikið hafi gerst í leiknum að þá skoruðu þeir samt mörk úr þeim færum sem þeir fengu.
Keflvíkingar eru búnir að sætta sig við fallið og komu inn í leikinn sýnandi það. Við fyrsta mark ÍA að þá brotnuðu þeir og hengdu haus. Kannski ljótt að segja það en þeir verðskulda það að falla. Langlélegasta lið deildarinnar.
Bestu leikmenn
1. Garðar Gunnlaugsson
Tvö mörk frá Garðari gefa honum þetta skuldlaust.
2. Hallur Flosason
Mark og stoðsending. Virkilega flottur leikur hjá Halli í dag.
Atvikið
Mark ÞÞÞ. Hann fær boltann í klafsi fyrir utan teig og hleður í eina neglu beint niður í markhornið. Virkilega vel gert hjá varnarmanninum.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA eru búnir að tryggja sæti sitt í deildinni og því fagna þeir. Keflvíkingar eru fallnir og voru fallnir fyrir leikinn. Það sem þetta þýðir er það þó að þeir falla með vafasömu meti, fæst stig í efstu deild karla í 12. liða deild og tóku það met af Skagamönnum.
Vondur dagur
Þetta er auðvelt val. Keflavíkurliðið allt, þjálfarar og leikmenn. Andleysið, baráttuleysið og viljinn algjörlega í lágmarki. Það sýndi sig bersýnilega í því að fyrsta hættulega færi þeirra kom á 65 mínútu leiksins.
Það er synd því á blaði eru margir leikmenn þeirra sem eiga að geta gert mun mun mun betur.
Dómarinn - 7,5
Fínn leikur hjá Pétri. Lét leikinn fljóta vel og gerði engin mistök.



