SKÝRSLAN: Enn versnar tímabilið hjá KR - Stjörnuleikur hjá Stjörnunni
Hvað réði úrslitum?
Það spilaði mjög stórt í þennan leik að Stefán Logi Magnússon, markmaður KR fékk að líta rauða spjaldið er hann braut á Guðjóni Baldvinssyni innan teigs. Veigar Páll skoraði síðan úr vítinu og var eftirleikurinn þægilegur hjá Stjörnunni.
Bestu leikmenn
1. Veigar Páll Gunnarsson
Sjaldan séð Veigar eins sprækan og í dag. Hann var eins og hann var fyrir tíu árum og réðu KR-ingarnir mjög illa við hann.
2. Guðjón Baldvinsson
Var eins og félagi sinn í sókninni, mjög sprækur allan leikinn. Var alltaf ógnandi og skoraði gott mark í upphafi seinni hálfleiks sem gerði út um leikinn.
Atvikið
Víti og rautt spjald á Stefán Loga spilaði stórt hlutverk í þessum leik.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingarnir halda þriðja sætinu en eru í hættu á að missa evrópusæti með svona úrslitum.
Stjarnan er um miðja deild en fagna því líklega smá að markatalan er ekki lengur í mínus.
Vondur dagur
Stefán Logi Magnússon. Rekinn útaf í fyrri hálfleik.
Jakob Schoop gat síðan ekki neitt en hann virðist vera með áskrift í þessu KR liði, sama hversu ómerkilegur hann er leik eftir leik.
Dómarinn - 6
Virðist hafa náð mikilvægasta dómnum rétt. Stefán Logi virðist brjóta á Guðjóni í í marktækifæri og varð því að gefa honum rautt. Hann fær hins vegar mínusa fyrir að spjalda Stjörnumenn fyrir ótrúlega litlar sakir allan seinni hálfleikinn.


