Fotbolti.net
@arnaringasonArnar Ingi Ingason
Arnar Ingi Ingason
Fjölnir
Fjölnir
Pepsi-deild karla 2015
Fjölnisvöllur
Pollagallaveður. Blautt og hvasst.
4 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
Kennie Knak Chopart 24'1 - 0Bergsveinn Ólafsson 28'2 - 0Aron Sigurðarson 39'3 - 03 - 144' Ívar Örn Jónsson3 - 245' Hallgrímur Mar Steingrímsson Guðmundur Böðvar Guðjónsson 84'4 - 24 - 387' Davíð Örn Atlason
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

SKÝRSLAN: Fjölnismenn sigra fáránlegan fótboltaleik

Hvað réði úrslitum?

Fáránlegur fyrri hálfleikur málaði leikinn upp með alls konar litum. Það leit allt út fyrir mjög öruggan sigur Fjölnis eftir að þeir voru komnir 3-0 yfir. 7 mínútum seinna var staðan 3-2 og Fjölnir einum manni færri. Það hafði þó nánast engin áhrif á heimamennina sem voru heilt yfir betra liðið í dag.

Bestu leikmenn

1. Aron Sigurðarson

Bara lang bestur á vellinum í dag. Skoraði, lagði upp, skapaði og var alltaf hættulegur.

2. Davíð Örn Atlason

Var mjög góður í dag og það skilaði sér í formi stoðsendingar. Samspil hans og Arons mjög gott.

Atvikið

Rauða spjaldið sem Gunnar Már fékk. Samkvæmt Gústa Gylfa segir Gunnar ekki hafa brotið á sér af ásetningi, en ljótt var þó brotið.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar falla niður í 9. sæti á meðan Fjölnismenn fara upp um eitt í það fimmta - Jafnir Valsmönnum á stigum fyrir síðustu tvær umferðirnar. Í bullandi séns á þessu fjórða sæti.

Vondur dagur

Gunnar Már Guðmundsson.

Dómarinn - 7

Með ágætis tök á leiknum og gerði rétt í rauða spjaldinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.