SKÝRSLAN: Leiknismenn kjöldregnir í Lautinni
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn hreinlega mættu ekki til leiks fyrr en í fyrsta lagi þegar ca. 70 mínútur voru liðnar af leiknum, fyrri hálfleikur þeirra var sá versti í Pepsi deildinni í sumar, by far. Fylkismenn hömruðu járnið meðan það var heitt og gengu á lagið.
Bestu leikmenn
1. Ragnar Bragi Sveinsson
Hans langbesti leikur í sumar, Leiknisvörnin lét hann líta út eins og rauðhærðan Messi á köflum. Hefði þó átt að klára þrennuna í einu dauðafærinu sem hann fékk.
2. Ásgeir Börkur
Í stöðunni 3-0 öskraði hann sína menn áfram og sá til þess að menn færu ekki í neitt cruise control, fórnaði sér fyrir allt og alla og vann hvern boltann inná miðsvæðinu á fætur öðrum.
Atvikið
Vítaspyrnan og aðdragandi hennar var ævintýralegur. Birkir Sigurðsson aðstoðardómari sá alfarið um að dæma hana og þá ruku Leiknismenn að honum og svo virðist sem þeir hafi rifið flaggið hans Birkis sem þurfti að skipta um flagg stuttu síðar.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn fjarlægast það að spila í Pepsi deild á næsta ári. Fylkismenn bjarga sér endanlega frá falli.
Vondur dagur
Eyjólfur Tómasson og Brynjar Hlöðversson fá að deila þessu, það þarf svosem engum blöðum um það að fletta. Eyjólfur átti stórkostlega slakan leik, átti að gera betur í fyrstu tveimur mörkunum og fékk svo gult fyrir kjaft, Brynjar átti í erfiðleikum með að tengja sendingu.
Dómarinn - 7,5
Heilt yfir vel dæmdur leikur hjá Valdimari, set að sjálfsögðu spurningamerki við vítaspyrnuna þar sem mér fannst brotið byrja vel fyrir utan teig, annars flottur leikur.



