Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi-deild karla 2015
Kópavogsvöllur
Hæg gola á hlið, völlurinn Bö-vélinni til sóma. Flottar aðstæður.
Breiðablik
Breiðablik
2 - 1
FH
FH
0 - 172' Atli GuðnasonJonathan Ricardo Glenn 74'1 - 1Damir Muminovic 77'2 - 1
Dómari: Þorvaldur Árnason
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Blikar eygja enn titilvonir

Hvað réði úrslitum?

Þriggja mínútna kafli í síðari hálfleik þar sem að Blikar skora tvö mörk eftir að hafa virkað ákaflega ólíklegir til að sækja af nokkrum krafti.

Bestu leikmenn

1. Atli Sigurjónsson

Þvílíkar gæðasendingar sem skapa bæði mörk Blika í dag auk þess að vera ofboðslega duglegur í varnarleiknum líka.

Besti leikur Akureyringsins knáa í Breiðabliksbúningnum.

2. Atli Guðnason

Bestur FH-inga í dag og maðurinn á bakvið mest af sköpun gestanna.

Atvikið

Á 37.mínútu varð mikið at í framhaldi af því að Damir braut á Serwy beint framan við bekk FH-inga sem urðu alveg æfir og vildu fá meira en gula spjaldið sem Þorvaldur sýndi.

Á móti vildu Blikar að ekkert yrði dæmt og töluvert fjör varð í samskiptum milli manna utan vallar.

Tíðindamaður .net sá ekki nægilega vel hvað skeði.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar hafa þar með gulltrygt Evrópusætið næsta sumar og fara langt með að tryggja sér 2.sætið.

Mestu máli skiptir þó að nú þurfa Hafnfirðingar sigur til að vera vissir um titil, næsta möguleika til þess fá þeir á laugardaginn gegn Fjölni í sínum síðasta heimaleik.

Blikar taka á móti ÍBV á sama tíma í lykilleik fyrir bæði lið.

Vondur dagur

Hafsentaparið hjá FH sofnar illa í kvöld að sjá Blikamörkin, áttu að gera betur í að koma í veg fyrir þau.

Dómarinn - 9,0

Frábær dómgæsla hjá tríóinu.

Meira af þessu takk!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.