Fotbolti.net
Björgvin Stefán Pétursson
Björgvin Stefán Pétursson
Pepsi-deild karla 2015
Kaplakrikavöllur
Rok og rigning en sól í hjörtum
FH
FH
2 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Atli Guðnason 50'1 - 01 - 169' Kennie Knak ChopartEmil Pálsson 80'2 - 1
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Emil Páls tryggði titilinn

Hvað réði úrslitum?

Frábær fyrirgjöf frá Hendrickx sem endaði með snertingu frá Emil Páls í netið, það var það sem skipti öllu máli í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Emil Pálsson

Var frábær á miðjunni hjá FH í dag. Skoraði svo markið mikilvæga sem skilaði FH titlinum eftirsótta.

2. Kennie Knak Chopart

Vann endalaust og gaf varnarmönnum FH aldrei frið. Var frábær í dag og skoraði mark sem hann átti skilið að skora.

Atvikið

Markið hjá Fjölni sem að hefði getað reynst FH dýrkeypt en það var það ekki í þetta skiptið. Engu að síður arfaslakt.

Hvað þýða úrslitin?

FH eru Íslandsmeistarar en Fjölnir ná ekki Evrópusæti, svo einfalt er það nú.

Vondur dagur

Veðurguðinn var vondur við okkur í dag. Annars voru Pétur Viðars og Róbert ekki í neinum samskiptum þegar Fjölnir skoraði sitt mark.

Dómarinn - 8

Háklassa dómgæsla í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.