SKÝRSLAN: Leiknisljónin sungu svanasöng
Hvað réði úrslitum?
Innkoma Gary Martin breytti leiknum. Veðrið batnaði líka eftir því sem á leið og virtist það henta heimamönnum illa.
Bestu leikmenn
1. Gary John Martin
Var allt í öllu þegar hann kom inn á, skoraði og lagði upp. Góður dagur hjá Gary sem hefði þó eflaust viljað byrja leikinn.
2. Óskar Örn Hauksson
Var mjög lifandi í dag og skoraði, reyndar mjög ljótt, mark sem slökkti aðeins á Leiknismönnum.
Atvikið
Bóas, aðal stuðningsmaður KR, var boðinn velkominn í Breiðholtið í dag og tók Allir sem einn með Leiknisljónunum.
Innan vallar var mark Óskars atvik leiksins.
Innan vallar var mark Óskars atvik leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknir er fallið. Næsta ár í Pepsi mun ekki verða litað með stemningu og gleði Leiknisljónanna og er eftirsjá af þeim. Fall liðsins blasti þó við síðustu umferðir og varð raunin í dag.
KR tryggði sér 3. sæti deildarinnar sem gefur þeim Evrópusæti. Sárabót í vonbrigðatímabili KR.
KR tryggði sér 3. sæti deildarinnar sem gefur þeim Evrópusæti. Sárabót í vonbrigðatímabili KR.
Vondur dagur
Elvar Páll, Óli Hrannar og Kristján Páll voru slakir í sókn Leiknis í dag og ekki batnaði það þegar Kolbeinn Kára kom inn á. Þetta er nú engu að síður vondur dagur fyrir allt Leiknisfólk og verður forvitnilegt að sjá hvað stopp þeirra í 1. deild verður langt.
Dómarinn - 6,5
La la frammistaða í dag. Rak Eirík Inga réttilega af velli en sumar ákvarðanir voru skrýtnar.



