Fotbolti.net
Ingunn Hallgrímsdóttir
Ingunn Hallgrímsdóttir
Pepsi-deild karla 2015
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
1 - 0
Valur
Valur
Arnar Már Guðjónsson 24'1 - 0Garðar Bergmann Gunnlaugsson (misnotað víti) 82'
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson

SKÝRSLAN: Mark frá miðju réði úrslitum í rokinu

Hvað réði úrslitum?

Vindurinn hafði mikið að segja í dag og gæðin í fótboltanum fengu að finna fyrir því. Skagamenn héldu hreinu og skoruðu frá miðju, það tryggði sigurinn!

Bestu leikmenn

1. Gylfi Veigar Gylfason

Var gríðarlega öflugur í vörn Skagamanna í dag.

2. Árni Snær Ólafsson

Hélt hreinu og varði nokkrum sinnum vel.

Atvikið

Vindurinn og sigurmarkið hjá Arnari Má. Magnað skot úr miðjuboganum en vindurinn hjálpaði talsvert til.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA klifraði upp fyrir Fylki í 7. sæti deildarinnar en Valsmenn sitja áfram í 4. sætinu fyrir lokaumferðina.

Vondur dagur

Bjarni Ólafur Eiríksson rotaðist eftir að hafa fengið boltann í hausinn í upphitun! Missti af leiknum fyrir vikið.

Dómarinn - 8,5

Flott frammistaða hjá Jarlinum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.