Fotbolti.net
Guðni Rúnar Gíslason
Guðni Rúnar Gíslason
Pepsi-deild karla 2015
Víkingsvöllur
Vindasamt og nokkuð blautt
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 0
Fylkir
Fylkir
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: Daufur dagur í Fossvogi

Hvað réði úrslitum?

Nákvæmlega ekki neitt. Lítið líf og lítið um góð marktækifæri. Vantaði talsvert upp á sköpunargleðina hjá báðum liðum.

Bestu leikmenn

1. Milos Zivkovic

Var rólegur og yfirvegaður og hélt vörn Víkings saman. Vann marga bolta og sá til þess að Thomas þurfti ekki að gera mikið í markinu.

2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson

Vann marga góða bolta á miðjunni. Það vantaði samt talsvert upp á að Fylkir myndi ná að klára þau tækifæri sem þeir fengu til að sækja hratt.

Atvikið

Hermann Hreiðarsson þjálfari Fylkis fékk rauða spjaldið í hálfleik. Var ósáttur við dómgæsluna virtist vera. Þessi hiti á bekknum náði ekki alveg að skila sér inn á völlinn.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið voru örugg um sæti í deildinni fyrir leikinn og höfðu lítið að spila upp á.

Dómarinn - 7

Heilt yfir góður. Engar slæmar ákvarðanir sem breyttu leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.