SKÝRSLAN: Stjörnumenn gengu á lagið gegn uppgjafarliðinu
Hvað réði úrslitum?
Það má segja að leikurinn hafi verið leikur kattarins að músinni, og líklega orðaði þjálfari Keflavíkur það best þegar hann talaði um að líkara hafi verið að Íslandsmeistararnir hafi verið að mæta 4. flokki.
Bestu leikmenn
1. Guðjón Baldvinsson, Stjarnan
Skoraði þrjú mörk, og var mjög lífilegur í sóknarleik Stjörnunnar. Duglegur að koma sér í færin og gefði getað skorað enn fleiri.
2. Halldór Orri Björnsson, Stjarnan
Í flottum gír á kantinum, skoraði glæsilegt mark og var duglegur að ógna Keflvíkingum.
Atvikið
Í þessum dálki verður að hrósa Silfurskeiðinni, stuðningsmönnum Stjörnunnar. Tímabilið búið að vera vonbrigði en þeir mættu og sungu allan leikinn og áttu líklega einn sinn besta leik í sumar.
Hvað þýða úrslitin?
Þýða í raun lítið því liðin voru ekki í neinni baráttu fyrir leik, en það skiptir Stjörnuna máili að laga stöðuna áður en yfir lýkur og eftir dapurt sumar að bjarga andlitinu. Mörkin sjö í dag þýða að Stjarnan er 7 mörkum í plús á stöðu töflunni.
Vondur dagur
Það er mjög táknrænt að Keflavík hafi mætt til leiks í Garðabæinn í hvítum búningum. Þeir eru fyrir löngu síðan búnir að kasta inn hvíta handklæðinu til merkis um uppgjöf. Keflavík er með marga fína leikmenn, en til að ná árangri þarf að sýna verkefninu áhuga. Það virtist ekki til staðar í dag frekar en að undanförnu.
Dómarinn - 8
Ekkert út á Þórodd Hjaltalín að setja í dag.



