Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi-deild karla 2015
Kópavogsvöllur
Völlurinn lítur mjög vel út hjá Bö-vélinni. En það er stífur hliðarvindur frá gömlu stúkunni.
Breiðablik
Breiðablik
1 - 0
ÍBV
ÍBV
Atli Sigurjónsson 51'1 - 0
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Áhorfendur: 410

SKÝRSLAN: Súrt sigurlið en glatt taplið

Hvað réði úrslitum?

Frábær sókn upp vinstri vænginn, enn einu sinni sýnir Kristinn Jónsson hvernig sóknarbakvörður getur verið mikilvægur í nútímafótbolta.

Svo auðvitað þurfti að klára sendinguna hans og það gerði Atli vel.

Bestu leikmenn

1. Atli Sigurjónsson

Frábær frammistaða Akureyringsins hárprúða annan leikinn í röð á Kópavogsvelli, bar sóknarleik Blika uppi og skoraði flott mark.

Afskaplega ánægjulegt að sjá hann dottinn í þetta form og ekki hægt annað en að velta því upp hvort svona leikmaður hefði ekki hjálpað KR í baráttunni. En Blikum er sama um það.

2. Hafsteinn Briem

Frábær frammistaða Hafsteins í vörn Eyjamanna sem átti góðan leik í dag.

Hristi m.a. af sér blóðgun og fínerí, var stöðugt að rífa sína menn áfram, leið greinilega vel í Kópavoginum.

Atvikið

Heilmikið havarí fór í gang í fyrri hálfleik þegar Garðar veitti Eyjamanni áminningu. Sá froðutrylltist og gerði ítrekaðar tilraunir til að fá annað gult.

Garðar Örn yfirvegaður allan tíminn og setti ekki annað gult þar, hefði hiklaust getað það.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar enda mótið í 2.sæti og fengu silfurpening afhentan í leikslok.

ÍBV sluppu við fall þrátt fyrir tapið.

Vondur dagur

Fyrir þann sem tók ákvörðun um leiktímann í þessari umferð.

Auðvitað eiga menn að koma á völlinn og styðja sína menn en það á líka að horfa til leiktíma sem virkar, kl. 14 á laugardegi er einfaldlega rómatísk hugsun sem virkar ekki.

Rétt rúmlega 400 manns á leik sem skiptir miklu máli er alveg hreint skelfileg niðurstaða.

Dómarinn - 9,0

Vel dæmdur leikur.

Allt undir stjórn frá upphafi til enda.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.