SKÝRSLAN: Mikið fjör í Safamýri í fyrstu umferð Inkasso deildarinnar
Hvað réði úrslitum?
Það má segja að veðurfarið skipti höfuðmáli í úrslitum þessa leiks. Öll mörkinn voru skoruð á sama mark þegar vindurinn blés í bakið. Selfoss setti tvö í fyrri hálfleik og Framarar gerðu slíkt hið sama í seinni, Selfoss var mun betra liðið í fyrri háfleik og Framarar voru betri í seinni og úrslitin kannski sanngjörn. Í liði Selfoss var innkoma Kristófers Páls mikilvæg en hann kom inn fyrir Gilles Mbang Ondo sem meiddist í upphitun. Kristófer skoraði annað mark Selfyssinga í þessum leik og var alltaf ógnandi í framlínu Selfoss.
Bestu leikmenn
1. Kristófer Páll Viðarsson
Kristófer átti ekki að spila þennan leik en kom inn fyrir Gilles Mbang Ondo sem meiddist í upphitun. Kristófer skoraði mark og var sá Selfyssingur sem ógnaði marki Framara hvað mest.
2. Guðmundur Magnússon
Guðmundur var síógnandi allan leikinn. Var að komast í gegn og leggja upp færi fyrir liðsfélaga sína. Kórónaði flotta frammistöðu með jöfnunarmarki beint úr aukaspyrnu á \'68 mínútu.
Atvikið
Ljót brot Selfyssingsins Toni Espinosa á \'68 mínútu rétt fyrir utan teig þeirra og jöfnunarmark Guðmundar Magnússonar sem kom beint úr aukaspyrnunni í kjölfarið og staðfesti endurkomu Framara.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega að liðin skipta á milli sín stigunum. Ekki hægt að vera með neina sleggjudóma eftir leik í fyrstu umferð en bæði liðin sýndu flotta takta í leiknum í bland við klaufaleg mistök. Bæði lið gætu náð langt í þessu móti með réttu hugarfari en deildinn er rétt að byrja.
Vondur dagur
Dino Garvic ásamt allri varnarlínu Framara hefði getað gert betur í seinna marki Selfyssinga þó svo að vindurinn líka hafi spilað sitt hlutverk. Garvic var þó heppinn að fá ekki spjald eftir stimpingar við leikmenn Selfoss í fyrri hálfleik en leikmenn Fram urðu að draga hann í burtu.
Dómarinn - 7
Nokkur skipti sem Sigurður hefði mátt flauta og jafnvel sýna fleiri spjöld en heilt yfir hafði hann góð tök á leiknum og leyfði honum að fljóta vel.



