Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi-deild kvenna
Grindavíkurvöllur
Völlurinn þokkalegur, talsverður vindur og kalt.
Grindavík
Grindavík
0 - 5
Þór/KA
Þór/KA
0 - 17' Sandra María Jessen 0 - 255' Arna Sif Ásgrímsdóttir 0 - 359' Sandra Stephany Mayor Gutierrez0 - 480' Sandra María Jessen 0 - 590' Sandra María Jessen
Dómari: Helgi Ólafsson
Áhorfendur: Um 100

SKÝRSLAN: Meistararnir byrja með látum

Hvað réði úrslitum?

Einstaklingsgæði. Í liði Þórs/Ka eru tvær af allra bestu knattspyrnukonum landsins í þeim Söndru Maríu og Söndru Mayor þær tvær voru einfaldlega í heimsklassa í dag og eru stóru munurinn á Þór/Ka og Grindavík og líklega flestum öðrum liðum Pepsi deildarinnar.

Bestu leikmenn

1. Sandra María Jessen

Var algjörlega frábær í dag. Skapaðist alltaf hætta þegar hún nálgaðist teiginn og gerði vel í skora þrennu og hefði líklega átt að skora fleiri ef eitthvað er. Yfirburðarkona á vellinum í dag.

2. Sandra Mayor

Hefur augljóslega engu gleymt síðan í fyrra. Átti stórgóðan leik, var mikið í boltanum og skilaði marki og stoðsendingu.

Atvikið

Fimmta og síðasta mark Þórs/Ka er atvik leiksins.
Sandra María stóð ein og óvölduð í teignum og fékk allan tíma heimsins til að ákveða hvar í markið hún ætti að setja boltann. Varnarmenn Grindavíkur voru í órafjarlægð og eftirleikurinn alltof auðveldur fyrir jafn góðan leikmann og Sandra María er.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/Ka hefur mótið með stæl og situr í öðru sæti deildarinnar á markatölu.

Grindavík þarf aftur á móti að laga ansi margt fyrir næsta leik liðsins sem er ekki af auðveldari gerðinni gegn Breiðablik

Vondur dagur

Vivianne í marki heimamanna er frábær markvörður og varði nokkrum sinnum vel í dag. En hún eins og aðrir í aftari línum Grindavíkur átti í miklum erfiðleikum með pressu norðankvenna í leiknum. Var oft að gaufa með boltann í eigin vítateig með mann í pressu á sér sem leiddi til lélegra hreinsanna og hættu upp við markið. Átti eins og áður sagði ágætar vörslur inná milli en var heilt yfir slök í dag.

Dómarinn - 6

Prúðmannlega leikinn leikur og reyndi ekki mikið á Helga og hans fólk en hann þarf að vera ákveðinn. Virkaði á köflum hálf óöruggur og jafnvel pínu stressaður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.