Fotbolti.net
Ísak Máni Wíum
Ísak Máni Wíum
Inkasso deildin - 1. deild karla
Hertz völlurinn
2°C, él og sterkur hliðarvindur í Mjóddinni
ÍR
ÍR
0 - 2
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 157' Ibrahim Sorie Barrie0 - 283' Gonzalo Zamorano Leon
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Ólsarar betri í storminum í Breiðholti

Hvað réði úrslitum?

Víkingar nýttu þau færi sem þeir fengu mjög vel og virtust vera með meiri gæði fram á við heldur en ÍR. Markaskorun er eitthvað sem ÍR virðast ekki vera með þessa daganna og þú vinnur ekki marga leiki án þess að skora fleiri mörk heldur en andstæðingarnir.

Bestu leikmenn

1. Gonzalo Leon (Víkingur Ó)

Kom frá Huginn fyrir tímabilið og er strax byrjaður að stimpla sig inn, bauð upp á áætlunarferðir upp kantinn og það skilaði sér í marki og stoðsendingu.

2. Patrik Sigurður Gunnarsson (ÍR)

Þrátt fyrir að hafa tapað 2-0 er ekki hægt að kenna honum um þessi mörk sem hann fékk á sig. Átti margar magnaðar vörslur í leiknum og átti stóran þátt í því að ÍR töpuðu bara 2-0, gæti orðið mikilvægur fyrir þá í sumar.

Atvikið

Í stöðunni 1-0 vildu ÍR fá vítaspyrnu þegar Máni Austmann var togaður niður í teignum, Binni Gests var ekki sáttur og uppskar gula spjaldið frá Aðalbirni.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar hefja mótið með góðum sigri og gætu vel gert tilkall til þess að fara upp í Pepsi á meðan ÍR gætu átt langt og erfitt sumar fyrir höndum.

Vondur dagur

Sóknarlína ÍR var ekki árennileg hér í dag. Andri Jónasar, Björgvin Péturs og Máni Austmann hafa allir átt betri daga fyrir framan markið. Einnig var þetta vondur dagur fyrir varamenn Víkings sem hituðu upp í 45 mín í storminum án þess að nokkur þeirra hafi fengið sénsinn.

Dómarinn - 4

Aðalbjörn og Helgi Mikael sem tók við á 64 mínútu fá þessa einkunn saman þó Helgi Mikael hafi ekki dæmt mikið. Aðalbjörn átti ekki góðan dag, hann hélt engri línu og spjaldaði oft á furðulegum augnablikum, báðir þjálfararnir voru ekki sáttir með hans störf dómaranna og uppskáru báðir gul spjöld í leiknum. Bæði lið vildu fá víti í leiknum auk þess sem Már Viðars hjá ÍR hefði átt að fjúka útaf með sitt annað gula spjald.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.