Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Akraneshöllin
Kalt en blankalogn á Skaganum. Rennisléttur völlur.
ÍA
ÍA
1 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Steinar Þorsteinsson 61'1 - 0
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

SKÝRSLAN: Skagamenn gulir og glaðir

Hvað réði úrslitum?

ÍA var bara töluvert betra liðið í þessum leik. Voru meira með boltann í fyrri hálfleik án þess að skapa sér alvöru færi samt. Og í seinni hálfleik var bara eitt lið á vellinum stórann hluta hálfleiksins. Smá líf í Leiknismönnum á stuttum köflum en ekki nóg til að vinna sterkt lið ÍA.

Bestu leikmenn

1. Einar Logi Einarsson(ÍA)

Einar Logi kom aftur í ÍA í vetur og var frábær í dag. Steig ekki feilspor í vörninni og átti nokkrar magnaðar sendingar fram.

2. Ragnar Leósson (ÍA)

Annar Skagamaður sem kom heim í vetur. Stjórnaði spilinu á miðjunni mjög vel og gæti átt eftir að reynast Skagamönnum gríðarlega mikilvægur.

Atvikið

Verð að velja þegar Egill dómari dæmir aukaspyrnu á Ólaf Val leikmann ÍA í vítateig Leiknis. Kemur sending fyrir og Ólafur Valur stekkur upp í skallabolta með bakið í markið og Eyjólfur kemur á ferðinni í bakið Ólafi og dómarinn dæmir aukaspyrnu á ÍA. Óskiljanlegt með öllu!

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn byrja mótið vel. Strax komnir þrír punktar á töfluna. Þeim er alls staðar spáð sigri í deildinni og mikilvægt fyrir þá að byrja mótið vel. Leiknismönnum aftur á móti spáð erfiðu gengi í sumar og þeir verða að gera getur í næstu leikjum ef þeir ætla ekki að lenda í fallbaráttu.

Vondur dagur

Þetta verð ég að skrifa á Egil dómara. Ég nefni enn og aftur þessa ákvörðun hans að dæma aukaspyrnu á Ólaf Val í fyrri hálfleik. En þess utan átti hann bara slakann dag.

Dómarinn - 4

Egill og hans menn áttu slakan dag verður að segjast.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.