Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Kórinn
HK
HK
3 - 0
Magni
Magni
Kári Pétursson 2'1 - 0Ingiberg Ólafur Jónsson 32'2 - 0Brynjar Jónasson 43'3 - 0
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Skýrslan: HK í stuði í fyrri hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn hjá báðum liðum réði úrslitunum, HK-ingar voru sprækir og óðu í færum meðan Magnamenn voru varla með og áttu hverja feilsendinguna á eftir annarri.

Bestu leikmenn

1. Ingiberg Ólafur Jónsson (HK)

Ingi var mjög góður í dag, eins og klettur í vörninni sem fékk ekki á sig færi og skoraði svo annað mark HK-inga, óheppinn að skora ekki annað en ótrúleg markvarsla Hjartar kom í veg fyrir það.

2. Ólafur Örn Eyjólfsson (HK)

Margir sem komu til greina en Óli fær þetta fyrir dugnaðinn og eljuna sem hann sýndi á miðjunni, Óli og Haffi voru geggjaðir á miðjunni og stoppuðu hverja sóknina á eftir annarri, Óli vann helling af boltum og var að bera boltann vel upp sóknarlega, spilaði þetta óáberandi hlutverk sem menn fá alltof sjaldan hrós fyrir!

Atvikið

Vítið sem Magnamenn vildu á 8. mínútu, boltinn fer í hönd HK-ings innan vítateigs og mér fannst þetta vera víti og hver veit hvernig leikurinn hefði þróast ef Magni hefði fengið víti og mögulega jafnað?

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að HK tyllir sér á topp Inkasso deildarinnar með 3 stig og +3 í markatölu eftir fyrstu umferð.
Magni hinsvegar situr eftir í botnsætinu með 0 stig og verri markatölu en Leiknir R. og ÍR.

Vondur dagur

Þeir sem koma til greina hér eru Arnar Geir og Krissi Rós, þeir geta báðir spilað miklu betur og þeir vita það. Gekk lítið upp hjá þeim og ég ætla hreinlega að skrifa þetta á þá báða!

Dómarinn - 7

Elías og hans aðstoðarmenn voru solid í dag, einu spurningamerkin eru vítaspyrnan sem Magni hefði getað fengið á 8. mín og svo spurning með rautt spjald á Ásgeir Marteins fyrir að hrinda Pedda, sá það þó ekki nógu vel sjálfur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.