SKÝRSLAN: Fjörugt jafntefli að Ásvöllum
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið lögðu mikla vinnu í leikinn og fengu tækifæri til að skora fleiri mörk. Eftir á að hyggja eru liðin eflaust sátt með stigið.
Bestu leikmenn
1. Arnar Aðalgeirsson
Skoraði tvo góð mörk og var ógnandi í fremstu víglínu Hauka í dag.
2. Ignacio Gil Echevarria
Var sprækur í sóknarleik Þórsara, þrátt fyrir að ná ekki að skora gerði hann sig líklegan oft á tíðum.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins kom snemma og tók sviðskrekkinn úr mönnum.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði liðin komast á blað í Inkasso deildinni
Vondur dagur
Miðað við gæðin sem Alvaro Montejo hefur náði hann ekki að skapa jafn mikinn usla í Haukavörninni og hann hefði átt að getað. Skrýtið að velja mann sem að skorar hingað inn en hann á að geta gert betur í sóknarleik Þórs.
Dómarinn - 7,0
Jóhann Gunnar Guðmundsson dæmdi leikinn nokkuð vel, var svolítið að spjalda fyrir tuð og mátti greinilega ekki segja mikið.


