SKÝRSLAN: Óvæntasti sigur sumarsins kom í Vesturbænum
Hvað réði úrslitum?
Leikmenn KR gáfu allt í verkefnið, vörðust vel og spiluðu skynsamlega. Þór/KA fékk urmul marktækifæra en áttu í stökustu vandræðum með að koma boltanum í netið. Það gekk öllu betur hinum megin og KR-ingar nýttu tvo af þeim sénsum sem þær fengu. Frábær stemmnings og baráttuframmistaða hjá skipulögðum KR-ingum sem urðu þar með fyrstar í deildinni til að vinna Íslandsmeistarana í sumar.
Bestu leikmenn
1. Katrín Ómarsdóttir
Drottningin setti tóninn strax í byrjun og vann allt í loftinu í kringum sig. Hún sýndi svo boltatækni sína og útsjónarsemi. Hélt boltanum vel, vann tíma og spilaði samherja í góðar stöður. Steig varla feilspor í leiknum.
2. Ingibjörg Valgeirsdóttir
Það er kannski skrítið að þrátt fyrir að Ingibjörg hafi átt mesta sök á marki gestanna og tekið nokkur furðuleg úthlaup var hún heilt yfir frábær. Hreinsaði upp nokkra hættulega bolta fyrir aftan varnarlínuna og átti frábærar vörslur.
Atvikið
Þetta var sjúklega spennandi leikur og fullt af færum og atvikum til að nefna. Ég ætla þó að nefna atvikin sem áttu sér stað á 69. og 70. mínútu. Fyrst skorar KR nánast upp úr þurru og kemur heimakonum í 2-0. Mínútu síðar minnkar Mayor muninn og hleypir gígantískri spennu í leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingar komast í 12 stig og rífa sig frá Grindavík og FH sem eru í fallsætunum. Þór/KA þurfa nú að treysta á aðrar en sjálfar sig ætli þær að verja titilinn. Eru nú stigi á eftir Blikum sem eru á toppnum og eiga leik til góða.
Vondur dagur
Heilladísirnar mættu ekki í bæinn með norðankonum. Þær voru miklu meira með boltann en áttu í mestu vandræðum með að reka endahnút á sóknir sínar. Liðið allt og þá sérstaklega sóknarmennirnir áttu vondan dag á síðasta vallarþriðjungnum.
Dómarinn - 7
Fín frammistaða hjá tríóinu heilt á litið.



