Fotbolti.net
Rögnvaldur Már Helgason
Inkasso deildin - 1. deild karla
Þórsvöllur
Grasið grænt og slétt, sól skín í heiði, léttur andvari
Þór
Þór
3 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Aron Kristófer Lárusson 51'1 - 0Jóhann Helgi Hannesson 65'2 - 0Ármann Pétur Ævarsson 80'3 - 0
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þórsarar gefa ekkert eftir í toppbaráttunni

Hvað réði úrslitum?

Njarðvíkingar virtust ekki hafa trú á því að þeir gætu farið með einhver stig heim, þegar líða fór á leikinn. Fyrri hálfleikur var jafn en sá síðari var eign Þórs, sem voru á undan í alla bolta og það sem er mikilvægast - þeir kláruðu sín færi.

Bestu leikmenn

1. Nacho Gil

Enn einn leikurinn þar sem miðjumaðurinn er allt í öllu. Var að vísu ekki áberandi í fyrri hálfleik en var langbestur í þeim síðari. Lagði upp tvö mörk.

2. Alvaro Montejo

Það er unun að horfa á þennan mann spila fótbolta. Hann skorar oftast mörkin en í dag var hann í öðru og hjálpaði liðsfélögunum í kringum sig.

Atvikið

Jóhann Helgi Hannesson sneri aftur á völlinn þar sem hann þekkir hverja þúfu, hvern hól. Skoraði frábært mark og stúkan ærðist af fögnuði.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvíkingar eiga erfiðan seinni umferð framundan og þurfa að gera miklu betur en í kvöld, ætli þeir sér ekki beinustu leið niður. Þórsarar aftur á móti halda sér í toppbaráttunni.

Vondur dagur

Miðjumenn Njarðvíkinga gjörsamlega hurfu í seinni hálfleik og það má kannski segja það sama um miðverðina. Við gefum þeim þennan vafasama heiður.

Dómarinn - 8

Var með fín tök á þessum leik og þurfti ekki oft að grípa í spjöldin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.