SKÝRSLAN: Hádramatík í sigri HK á Selfossi!
Hvað réði úrslitum?
Töfrar Ásgeirs Marteinssonar fóru langt með þennan leik fyrir HK. Tvö geggjuð mörk hjá honum í kvöld. Útsjónarsemi hans í fyrsta markinu og frábært skot í því seinna. Ákvörðun dómaratríósins í lokin að flauta mark Selfoss af gæti einnig reynst afdrifaríkt í lok móts.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Marteinsson
Besti maður vallarins í dag. Fór oft á tíðum afar fallega með boltann. Skoraði 2 mörk sem að tryggir HK áfram toppsætið. Góður dagur á skrifstofunni.
2. Bjarki Leósson.
Besti leikur í treyju Selfoss sem ég hef séð. Vann nánast öll sín návígi og barðist eins og ljós. Góður leikur og vonandi getur Bjarki byggt ofan á þessa glimrandi frammistöðu.
Atvikið
Hreint og klárt! Þegar markið er dæmt af Selfoss í uppbótartíma. Ingi Rafn Ingibergsson mætti fyrstur á boltann eftir að Arnar Feyr varði aukaspyrnu Tokic út í teig. Bjarki Óskarsson flaggaði Inga rangstæðan, sem reyndist rangur dómur. Algerar senur og klárlega atvik leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
HK - Lið fólksins trónir eitt á toppi Inkasso deildarinnar með 32 stig. Þeir eru enn taplausir og verða að teljast til alls líklegir í baráttunni um sæti í Pepsi-deildinni.
Góðu fréttirnar fyrir Selfoss eru hins vegar þær að öll liðin í kringum þá töpuðu í kvöld og því breytist ekkert í botnbaráttunni. Selfoss sýndi batamerki í leik sínum í kvöld og spili þeir svona gætum við séð stigin fara að koma í hús.
Góðu fréttirnar fyrir Selfoss eru hins vegar þær að öll liðin í kringum þá töpuðu í kvöld og því breytist ekkert í botnbaráttunni. Selfoss sýndi batamerki í leik sínum í kvöld og spili þeir svona gætum við séð stigin fara að koma í hús.
Vondur dagur
Ég verð að setja Vonda daginn á Bjarka Óskarsson AD1 á vonda daginn. Hann flaggaði jöfnunarmark Selfyssinga af á 90. mínútu. Það var einfaldlega rangur dómur. Vilji fólk sjá ákvörðunina þá get ég bent fólki á að leikurinn var á Selfoss TV á Youtube.
Dómarinn - 6
Sigurður Hjörtur átti slakan fyrri hálfleik og spjaldaði menn að óþörfu. Mun betri í seinni hálfleik. Hann dæmdi markið ekki af og verður að treysta aðstoðarmanni sínum. Meðaltal 6.


