Fotbolti.net
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Ásvellir
Haukar
Haukar
1 - 3
ÍA
ÍA
Aron Freyr Róbertsson 8'1 - 01 - 127' Jeppe Løkkegaard Hansen1 - 238' Ólafur Valur Valdimarsson 1 - 348' Jeppe Løkkegaard Hansen
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Jeppadagar á Ásvöllum

Hvað réði úrslitum?

Gæði Skagamanna umfram gæði Haukamanna.

Bestu leikmenn

1. Arnar Már Guðjónsson

Einn af betri miðjumönnum í Inkasso-deildinni. Mikil yfirvegun á miðjunni og stjórnaði hann bæði varnar og sóknarleik Skagamanna. Lagði upp mark og átti tvö stórhættuleg skot utan teigs.

2. Þórður Þorsteinn Þórðarson

Var hættulegur í hægri bakvarðarstöðunni. Átti fjöldan allan af sendingum bæði innfyrir vörn Hauka sem og hættulegar hornspyrnur þar sem Skagamenn skoruðu uppúr einni af þeim.

Atvikið

Aron Freyr Róbertsson gekk í raðir Hauka frá Keflavík seint í gærkvöldi. Eftir eina æfingu fór Aron beint í byrjunarlið Hauka og kom hann liðinu yfir strax á 8. mínútu leiksins. Ágætis byrjun hjá drengnum hjá nýju liði.

Hvað þýða úrslitin?

Taphrina Hauka heldur áfram. Fimmta tapið í röð og er liðið áfram í mikilli fallbaráttu ásamt þónokkrum liðum. Skagamenn halda 2. sætinu og verða í toppbaráttunni til loka.

Vondur dagur

Sóknarleikur Hauka bauð varla upp á neitt allan leikinn. Fyrsta markið var gjöf frá Arnór Snæ varnarmanni ÍA. Eftir það bauð sóknarleikur Hauka góða nótt og svaf værum blundi allan leikinn.

Dómarinn - 5

Erfiðleikastigið í þessum leik var ekki það mikið að það var algjör óþarfi fyrir Jóhann Inga dómara leiksins og aðstoðarmenn hans að missa tökin. Alltof mörg spjöld litu dagsins ljós og jafnvel á kolröngum tíma þegar út í það er farið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.