SKÝRSLAN: Öruggur sigur Víkinga á botnliði Magna
Hvað réði úrslitum?
Betra liðið vann í dag, það er bara svoleiðis. Víkingar sýndu bara gæfumuninn á liðunum með þessum sigri í dag
Bestu leikmenn
1. Gonzalo Zamorano Leon - Víkingur Ólafsvík
Gonzalo var magnaður í dag. Grátlega nærri því að fullkomna þrennuna en hann skoraði tvö og lagði upp eitt og var allt í öllu í sóknarleik Víkinga
2. Ástbjörn Þórðarson
Strákurinn úr KR var frábær í dag. Skoraði fyrsta mark leiksins og lagði upp það þriðja. Alltaf mættur í overlappið og tilbúin að gefa fyrir
Atvikið
Þriðja mark leiksins. Gonzalo batt endan á mjög fallega sókn Víkinga og það drap mikið í Magnamönnum. Þeir áttu erfitt með að skapa sér færi í síðari hálfleik þar til í lokin þegar vörn Víkinga sofnaði.
Hvað þýða úrslitin?
Staðan helst óbreytt uppá topp þar sem 5 efstu lið deildarinnar sigruðu leiki sína í umferðinni. Einnig er óbreytt staða á botni deildarinnar þar sem öll neðstu 5 liðin töpuðu sínum leikjum
Vondur dagur
Davíð Rúnar Bjarnason og vörn Magna. Voru mjög shaky í öllum mörkum Víkinga.
Dómarinn - 9
Mjög góð dómgæsla í þessum leik


