Fotbolti.net
Ísak Máni Wíum
Ísak Máni Wíum
Inkasso deildin - 1. deild karla
Eimskipsvöllurinn
Geggjaðar!!
Þróttur R.
Þróttur R.
6 - 1
ÍR
ÍR
Viktor Jónsson 2'1 - 01 - 133' Jón Gísli Ström (víti)Daði Bergsson 36'2 - 1Aron Þórður Albertsson 59'3 - 1Emil Atlason 70'4 - 1Emil Atlason 72'5 - 1Aron Þórður Albertsson 76'6 - 1
Dómari: Bjarki Danielsen
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Niðurlæging í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar voru bara miklu betri á öllum sviðum fótboltans, það þarf ekkert að ræða það mikið meira.

Bestu leikmenn

1. Emil Atlason (Þróttur)

Emil kom inn í hálfleik og setti 2 mörk og 1 stoðsendingu. Þarf að biðja um betri innkomu? Nei held ekki.

2. Aron Þórður Albertsson (Þróttur)

Aron kom inn í byrjunarliðið fyrir leikinn og svaraði kallinu frábærlega með tveimur góðum mörkum.

Atvikið

Innkoma Emil Atla! Vá ekki annað hægt en að samgleðjast manninum. Búinn að glíma við erfið meiðsli og klárar þennan leik.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur eru ennþá í fimmta sæti og ríghalda í smá séns á að blanda sér í toppbaráttuna. Á meðan er ÍR í þessum rosalega fallbaráttupakka í tíunda sæti.

Vondur dagur

Miðvarðapar ÍR. Skúli Sigurz og Haldór Arnars sem voru að spila sína fyrstu leiki í sumar voru hræðilegir í dag og á móti mönnum eins og Viktori Jóns og Emil Atla er þér refsað trekk í trekk.

Dómarinn - 9

Færeyingurinn frábær, lét leikinn fljóta vel og vítaspyrnudómurinn var réttur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.