SKÝRSLAN: Mörkin neituðu að koma í Vesturbænum
Hvað réði úrslitum?
Stóra táin á Ingibjörgu markmanni KR átti stóran þátt í að tryggja KR-ingum stig í leik tveggja ólíkra hálfleikja. KR-ingar hefðu átt að vera yfir í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta sína sénsa. Valskonur tóku yfir leikinn er leið á og óðu í sénsum síðustu mínútur leiksins. Klaufagangur, sláin og áður nefnd Ingibjörg höfðu þar mest að segja og niðurstaðan markalaust í jafntefli.
Bestu leikmenn
1. Ingibjörg Valgeirsdóttir
Ingibjörg hefur verið að eiga stórleiki að undanförnu og hélt uppteknum hætti í dag. Átti nokkrar frábærar vörslur undir lok leiks og tryggði KR-ingum stigið.
2. Katrín Ómarsdóttir
Var frábær í fyrri hálfleik. Bjó til sénsa fyrir liðsfélagana og var sterk í návígjum. Það fór minna fyrir henni í seinni hálfleik en hún var í risa hlutverki fyrir KR og fær titilinn. Þá má líka nefna Hlín hjá Val sem átti mjög góðan seinni hálfleik.
Atvikið
Það voru svo mörg hættuleg færi í þessum leik að það er varla hægt að taka til eitthvað eitt atvik. Ingibjörg átti nokkrar frábærar vörslur undir lokin og fær þær skráðar sem \"atvikin\" í fleirtölu.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingar geta vel nýtt stigið í botnbaráttunni. Þær ná að lyfta sér upp fyrir HK/Víkinga og í 7. sæti á markatölu en HK/Víkingar eiga þó leik til góða gegn Grindavík. Valskonur eru áfram tveimur stigum á eftir Stjörnunni í baráttunni um 3. sætið en Stjarnan gerði einnig jafntefli í dag.
Vondur dagur
Það var aragrúi marktækifæra sem fór forgörðum hér í dag. Bestu sénsana fengu þær Shea hjá KR og þær Fanndís, Elín Metta og Hlín hjá Val. Þær hljóta allar að vera nokkuð svekktar með að hafa ekki náð að setja\'nn.
Dómarinn - 7,5
Ekki erfiðasti leikurinn til að dæma en tríóið var með sitt á hreinu.



