SKÝRSLAN: Dramatískar lokasekúndur á heimavelli hamingjunnar
Hvað réði úrslitum?
Áræðni Víkinga og kæruleysi KA manna í lok leiks. KA voru með þennan leik í höndum sér og missa hann svo niður í jafntefli, ekki í fyrsta skipti í sumar.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Einn besti leikur hans Hallgríms í sumar, var virkilega mikill kraftur í honum. Fékk aukaspyrnuna sem fyrra markið kom úr og skoraði það seinna.
2. Andreas Larsen
Sá var góður í dag og hélt Víkingi einfaldlega á floti, ef ekki væri fyrir hann hefði KA verið löngu búnir að ganga frá leiknum, flottur markmaður sem gæti haldið þessu liði uppi.
Atvikið
Jöfnunarmark Víkinga, komið á fimmtu mínútu framlengingar þegar Alex Freyr renndi boltanum í netið og jafnaði leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur þurfti á þessu stigi að halda, eru núna með 20 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti en þeir eru ekki sloppnir enn. KA eru svo gott sem sloppnir við falldrauginn með 23 stig í 7.sæti en ljóst er að þeir komast varla í Evrópusæti héðan af.
Vondur dagur
Hallgrímur Jónasson fær því miður þennan titil en hann kom inná eftir að hafa verið lengi frá og fékk á sig tvö mörk úr unnum leik. Mörkin voru ekki honum að kenna en ljóst er að hann hefði viljað betri endurkomu en þetta. Glórulaust að mínu viti að hann hafi verið settur á miðjuna en ekki í hafsentinn sem er hans staða. KA liðið lýtur einfaldlega ekki vel út á miðjunni þegar Daníel eða Bjarni eru útaf.
Dómarinn - 1.5
Helgi Mikael var afleitur í dag, hann átti aldrei að dæma þennan leik eftir að hafa dæmt víti sem fjórði dómari gegn Víkingi í síðasta leik og fíaskóið í Grindavík-KA. Dæmdi mjög illa, sleppti augljósum brotum og spjöldum í gegnum allan leikinn.



