SKÝRSLAN: Bragðdaufur jafnteflis leikur í Vestmannaeyjum
Hvað réði úrslitum?
Þessi leikur var týpískur 50/50 leikur þar sem baráttan réði öllu. Leikurinn var bragðdaufur og voru bæði lið ekki að skapa sér mikið á loka þriðjungnum.
Bestu leikmenn
1. Clara Sigurðardóttir
Baráttan og dugnaðurinn í Clöru í dag var svo sannarlega til staðar. Þessi stelpa er fædd 2002 og var að spila eins og hún væri búinn að vera að spila í Pepsi deildinni í 10 ár. Frábær frammistaða.
2. Lára Kristín Pedersen
Hættulegasti leikmaður Stjörnunnar í dag. Fékk bestu færin í leiknum og var mjög hættuleg.
Atvikið
Ætla að setja færið hjá Láru á 21. mínútu hérna. Hún var ein á auðum sjó og hefði getað komið Stjörnustelpum yfir. Þá hefði þetta verið allt annar leikur.
Hvað þýða úrslitin?
Eitt stig á hvort lið. Stjörnustelpur ennþá í 3. sæti með 29 stig á meðan að Eyjastelpur sitja í 5. sæti með 19 stig.
Vondur dagur
Það átti enginn vondan dag í dag. Allir leikmennirnir börðust vel og eiga skilið hrós fyrir það. Sólin lét sjá sig, vindurinn lét ekki sjá sig og áhorfendur til fyrirmyndar. Gleði og hamingja alla leið.
Dómarinn - 7
Tríóið skilaði sínu í dag, dæmdu leikinn vel og létu hann fljóta.



