SKÝRSLAN: Stórfurðulegur átta marka leikur á Origo-vellinum
Hvað réði úrslitum?
Gæði Valsara eru einfaldlega bara miklu meiri en hjá Fjölni. Gestirnir byrjuðu leikinn miklu betur en voru ekki nógu beittir í sóknarleiknum. Glæsilegt mark Sigurðs Egils undir lok fyrri hálfleiks gaf síðan tóninn fyrir það sem að koma skyldi.
Bestu leikmenn
1. Eiður Aron Sigurbjörnsson
Það er frekar steikt að setja miðvörð sem mann leiksins þegar að liðið hans fær á sig þrjú mörk en Eiður var frábær í þessum leik og stýrði sínu liði vel. Var óheppinn að skora ekki seint í leiknum.
2. Guðmundur Karl Guðmundsson
Lang besti leikmaður Fjölnismanna í dag. Var síógnandi og kom að allaveganna tveimur mörkum Fjölnis í dag.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins var stórglæsilegt hjá Sigurði þegar að hann þrumaði boltanum í vinkilinn. Svo voru síðustu mínútur leiksins afar fjörugar en skoruð voru fjögur mörk eftir 85.mínútu.
Hvað þýða úrslitin?
Valsarar endurheimta toppsætið og eru með þriggja stiga forrystu á Stjörnumenn. Fjölnismenn eru hins vegar ennþá í bullandi botnbaráttu og þurfa að fara að vinna leiki ef ekki á illa að fara.
Vondur dagur
Birnir Snær var ólíkur sjálfum sér í dag. Þá kom einnig ekki mikið útur Þóri Guðjónssyni. Torfi Tímoteus skorar svo sjálfsmark og fær líka að deila þessum titli með félögum sínum.
Dómarinn - 5
Pétur tók nokkrar furðulegar ákvarðanir og var línan ekki alveg nógu skýr hjá honum. Hann rétt sleppur við fall þar sem að það virtist ekki hafa nein áhrif á úrslit leiksins.



