Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi-deild karla
Kaplakrikavöllur
Völlurinn blautur og algjört logn
FH
FH
4 - 0
KR
KR
Robert David Crawford 11'1 - 0Jákup Ludvig Thomsen 45'2 - 0Robert David Crawford 55'3 - 0Þórir Jóhann Helgason 86'4 - 0
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: FH með flugeldasýningu þegar þeir pökkuðu KR saman í Krikanum!

Hvað réði úrslitum?

Sóknarnýting FH var gríðarlega góð í dag, þeir lágu undir mikilli pressu eftir að hafa komist í 1-0 en svo skora þeir annað markið rétt fyrir hálfleik og klára þennan leik svo 3-0 í upphafi seinni hálfleiks og KR-ingar voru aldrei líklegir í seinni hálfleiknum. Það var svo Þórir Jóhann Helgason sem kláraði leikinn rúmri mínútu eftir að hann kom inná og 4-0 sigur staðreynd!

Bestu leikmenn

1. Jákup Thomsen

Loksins fengum við að sjá af hverju FH náði í þennan strák í glugganum. Var algjörlega frábær í dag, skoraði eitt mark og lagði upp annað og var að fara mjög illa með vörn KR-inga.

2. Robbie Crawford

Robbie Crawford var mjög öflugur á miðjunni í dag, skoraði svo tvö mörk, það seinna var einkar fallegt!

Atvikið

Markið hjá Þóri Jóhanni Helgasyni. Þórir er fæddur árið 2000 og kom inná í sínum fyrsta leik fyrir Fimleikafélagið á 84.mínútu og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið á þeirri 86. við mikinn fögnuð FH-inga!

Hvað þýða úrslitin?

Þessi úrslit galopna Evrópubaráttuna þar sem FH jafna KR af stigum og minnka markatöluna í aðeins 2 marka mun. KR er í 4.sætinu með 30 stig og 8 í markatölu og FH í 5.sæti með sama stigafjölda og 6 í markatölu.

Vondur dagur

Aron Bjarki Jósepsson var afleitur í vörn KR í dag, hann var mjög ólíkur sjálfum sér, leit út eins og amatör í markinu hjá Thomsen þar sem hann labbaði framhjá honum og skoraði. Síðan var hann næstum því búinn að skora sjálfsmark sem endaði með að Þórir skoraði 4. mark FH. Maður er ekki vanur því að sjá Aron spila svona leik.

Dómarinn - 9

Þóroddur dæmdi þennan lek gríðarlega vel, hélt sömu línu allan leikinn og allar þær ákvarðanir sem ég sá voru hárréttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.